Græjur

Úlfur í sauðagæru

Úlfur í sauðagæru

Litla Canon S90 myndavélin er sannkallaður úlfur í sauðagæru. Lítur út eins og venjuleg vasamyndavél og virkar ekki fancy á að líta. En hún getur töluvert mikið meira en þær flestar. Myndgæðin koma skemmtilega á óvart og möguleikinn á að skjóta RAW býður enn meiri möguleika til að kreista allt út úr kvikindinu. Stærsta ljósop [...]


Eldgos @ ISO 25.600

Eldgos @ ISO 25.600

Fyrir ekki löngu síðan hefði verið ómögulegt að ná nothæfri mynd við svona aðstæður. Klukkan er 21.39 að kveldi 19. apríl og ég er staddur í Cessnu Hawk yfir Eyjafjallajökli. Birtan er alveg að hverfa, við fljúgum á um 90 hnúta hraða með opinn glugga og ég tek þessa mynd á ISO 25.600 á Nikon [...]


Canon EOS 1D Mark IV vs. Nikon D3s

Canon EOS 1D Mark IV vs. Nikon D3s

Canon vs. Nikon er svolítið eins og PC vs. Mac. Fyrir suma eru val á öðru hvoru merkinu umfram hitt trúarbrögð. Ég er ekki einn þeirra sem tek það persónulega þegar ný myndavél kemur á markað frá “hinum” sem er betri en mín. Ég vel það verkfæri sem ég tel hæfa best hverju sinni. Margir [...]


Mark IV – fyrstu kynni

Mark IV - fyrstu kynni

Ég er búinn að vera með Canon EOS Mark IV í láni í nokkra dag til reynslu. Ég hef reyndar haft bölvanlega lítinn tíma til að leika mér með hana sökum anna í námi, vinnu og fjölskyldu undanfarna daga. En ég náði nokkrum römmum um helgina síðustu við aðstæður sem ættu að gefa nokkuð góðar [...]


Gleðilegt linsutest

Gleðilegt linsutest

Ég fékk nýju AF-S Nikkor 70-200mm f/2.8G ED VR II linsuna lánaða hjá Beco núna rétt fyrir áramótin. Eftir að hafa lesið eintómt lof um hana á Netinu var ljóst að ég varð að fá að prufa. Fyrir er ég með AF-S Nikkor 80-200mm f/2.8 D EF-IF sem sumum finnst jafnvel betri en fyrsta kynslóðin [...]


Jólaveiðar

Jólaveiðar

Það er náttúrulega fáranleg hugmynd að setja upp risastórt leikfang í stofunni fyrir tvo unga fressketti og ætlast til þess að þeir afneiti fyrirfram forrituðu eðli sínu. Reyndar er nokkur munur á þeim félögum Mikka og Sólmundi. Mikki er greinilega meiri veiði- og skógarköttur en Sóli og var kominn undir tréð um leið og það [...]


MegaPixlar síðustu daga

MegaPixlar síðustu daga

Hvort skiptir meira máli, fjöldi pixla eða gæði þeirra? Ég hef séð 39 Megapixla myndir sem gera sig ekkert endilega betur stækkaðar en aðrar sem eru ekki nema 12 Megapixla. Framleiðendur myndavéla koma sífellt með nýjar útgáfur af vélum, sérstaklega í flokknum sem er ætlaður svokölluðum Prosumer, sem mætti þýða á íslensku sem faghugar. Svona [...]


Óli og Lundinn

Óli og Lundinn

Frekari orð eru óþörf.


Er grasið grænna?

Er grasið grænna?

Hingað til hef ég ekki fengið mikil viðbrögð við því að kaupa mér nýja myndavél, ekki einu sinni frá konunni. Því fannst mér það svolítið skondið þegar umræður fóru af stað á ljosmyndakeppni.is um kaup mín á Nikon D3s og “stórsölu” á Canon linsum. Áður hafði ég selt Canon 1Ds Mark III vél og nokkrar [...]


Catfight @ ISO 12800

Catfight @ ISO 12800

Það var D-dagur á föstudaginn. D3s-dagur nánar tiltekið. Ég átti nú ekki von á því vélin yrði afhent á Íslandi sama dag og hún fór formlega í sölu í Bandaríkjunum. Kom svona skemmtilega á óvart! Vélin er alveg hreint mögnuð. Tók þessa og nokkrar í viðbót seint á föstudagskvöldið af heimilisköttunum í sínu daglega tuski. [...]


Hliðruð snilld

Hliðruð snilld

Ég var svo heppinn að fá nýju Canon TS-E linsurnar lánaðar hjá Sense/Nýherja í vikunni. Um er að ræða uppfærslu á TS-E 24mm f/3.5L og glæný TS-E 17mm f/4L. Í stuttu máli eru þetta bestu gleiðhorna linsur fyrir Canon EOS sem hægt er að kaupa. Ég á eldri útgáfuna af 24mm linsunni og hef notað [...]


Græjutest > Nikon SU-800

Græjutest > Nikon SU-800

Ég fékk lánaðan Nikon SU-800 þráðlausan sendi fyrir flöss hjá Beco. Líkt og ST-E2 sendirinn frá Canon gerir SU-800 ljósmyndurum kleift að staðsetja flössin burt frá sjálfri myndavélinni og skapa þannig mun athyglsiverðari lýsingu og dýpt. Ég átti ST-E2 fyrir Canon á sínum tíma, en seldi hann fljótlega þar sem ég var aldrei öruggur hvort [...]


Dótadagur Nikon Expo

Dótadagur Nikon Expo

Það er óhætt að segja að Nikon kynningin sem haldin var á Hótel Sögu í vikunni sé með metnaðarfyllri vörukynningum hér á landi á sviði ljósmyndunar. Það komu bæði sérfræðingar og markaðsmenn frá Nikon í Svíðþjóð – og nóg af dóti! Reyndar var bara ein Nikon D3s vél með í för, sem skýrist af því [...]


Tveir dagar með Canon G11

Tveir dagar með Canon G11

Stundum er minna meira. Minni upplausn á sömu stærð af skynjara þýðir stærri pixlar. Stærri pixlar þýðir minna suð (e. noise). Canon fékk liðsmenn frá VII Photo Agency til hjálpar við þróun á nýjustu G-vélinni. Þar á bæ óskuðu menn sér litla vél sem væri nothæf við fréttaljósmyndun við alls konar birtuskilyrði. Vél sem hægt [...]


ISO 102.400?

ISO 102.400?

Hvað er nú það? Nýr gæðastaðall? Nei, það er hæsta ljósnæmni sem nýja Nikon D3s getur unnið á. Á mannamáli – þú getur tekið myndir við aðstæður þar sem þú sérð varla til lengur. Nikon var lengi eftirbátur Canon þegar það kom að gæðum mynda teknar á háu ljósnæmni. Það breyttist þegar Nikon D3 kom [...]


Ný Canon G11

Ný Canon G11

Canon eru ekki að baki dottnir. Loksins kemur lítil og nett vél sem tekur myndgæði fram yfir megapixla. Nýja Canon G11 virkar a.m.k. mjög spennandi. Þeir fengu blaðaljósmyndara í lið með sér til að gera breytingar á G-vélinni þannig að hún myndi henta þeim betur. Þar er áherslan fyrst og fremst sú að geta tekið [...]


Nýja linsan rokkar

Nýja linsan rokkar

Fyrir rúmum mánuði eignaðist ég nýju 24mm f/1.4L II linsuna frá Canon. Var lengi búin að langa í þessa brennivídd í þessari föstu og hröðu L-línu. Ég prófaði fyrstu kynslóð af henni og þótt hún sé góð þá fannst mér hún vera nokkuð lakari en t.d. 35mm f/1.4L sem ég á líka og er ein [...]


Alvöru kortalesari

Alvöru kortalesari

Í takt við hærri upplausn myndavéla þarf maður að bíða lengur eftir því að lesa af minniskortunum úr vélunum. Kortin stækka auðvitað líka, þannig að lestur af 4GB korti tekur núna 4x lengur ef lesið er af jafn hraðvirku 16GB korti. Ég var búinn að leita víða hér heima eftir hraðvirkari lesara en USB2, en [...]


Myndir ársins og nýjar TS-E frá Canon

Myndir ársins og nýjar TS-E frá Canon

Myndir ársins 2008 opnar í­ Gerðarsafni í­ dag kl. 15.00. Vert er að taka það fram að frítt er á sýninguna eins og áður. Hún er alltaf vel sótt, Golli sagði mér í gær að hún væri árlega mest sótta sýning Gerðarsafns. Það kemur ekki á óvart. Þessi ljósmyndasýning er baksýnisspegill þjóðarinnar. Um að gera [...]


Fókusinn í lagi?

Fókusinn í lagi?

Ari Carl í Paradís. Canon EOS 5D Mark II, EF 35mm f/1.4L Sumir vilja meina að fókusvandamál D-SLR myndavéla hafi verið að aukast. Ég held reyndar ekki að um aukningu sé að ræða. Það gefur auga leið að með hærri upplausn sjáum við myndirnar í meiri smáatriðum og því sjást bara allir gallar betur. Sjálfvirkur [...]


Leitin að fullkomnu töskunni

Leitin að fullkomnu töskunni

Ég veit ekki hvað ég hef átt margar ljósmyndatöskur. Þær skipta tugum. Litlar og stórar, axlartöskur, bakpokar, axlartöskur með fartölvuhólfi, bakpokar með fartölvuhólfi – nefndu hana og ég hef líkast til keypt hana! Og það fyndna er að oftast dett ég aftur niður á að nota gömlu Billingham töskuna sem ég keypti í Beco fyrir [...]


Fastbúnaðaruppfærsla fyrir EOS 5D Mark II

Fastbúnaðaruppfærsla fyrir EOS 5D Mark II

Frændurnir Erling og Halldór á góðri stund. Canon EOS 5D Mark II, EF 50mm f/1.2L WTF er fastbúnaðaruppfærsla? Á ensku heitir það firmware update.Til að standa við loforðið um nördapóst ákvað ég að skella þessu inn. Það er sem sagt komin svokölluð fastbúnaðaruppfærsla á Canon EOS 5D Mark II. Eigendur slíkra gæðagripa geta sótt uppfærsluna hér. [...]


Jólin komu snemma í ár

Jólin komu snemma í ár

Arndís málar sig. Canon EOS 5D Mark II, EF 50mm f/1.2L Ég sá eftir því að hafa selt fimmuna mína. Þó að hún væri ekki eins sterkbyggð og ásarnir og ekki með eins öflugt fókuskerfi var hún samt svo frábær. Þegar ég spái í það þá er Canon EOS 5D líkast til bestu myndavélakaup sem [...]


Besta fjölskylduvélin?

Besta fjölskylduvélin?

Aratásur. Lomo LC-A. © Margrét Rúnarsdóttir Ég held því fram að Lomo LC-A sé besta fjölskyldumyndavél sem framleidd hefur verið. Af hverju? Skoðið bara þessar gömlu myndir sem ég rakst á þegar ég var að taka til í tölvunni í kvöld. Þarna hafa flestir fjölskyldumeðlimirnr tekið myndir og mér finnst þetta steinliggja allt saman. Framtíðin [...]