Næsta Lightroom námskeið

Þá styttist í næsta Lightroom námskeið, en þau held ég í samvinnu við Sense í Hlíðarsmára. Mér telst til að þetta sé fimmta námskeiðið sem ég held í samvinnu við þá. Miðað við umsagnir þátttakenda hafa þau verið vel heppnuð, en auðvitað er alltaf misjafnt hvar fólk er statt í upphafi. Námskeiðið hentar þeim vel [...]
Lightroom 2.4 uppfærsla

Adobe var að gefa út uppfærslu á Lightroom sem nú er komið í útgáfu 2.4. Meðal nýjunga er stuðningur við Nikon D5000 og Canon EOS 500D (Digital Rebel T1i í BNA). Einnig er um almennar lagfæringar að ræða til að auka stöðugleika og hraða forritsins. Uppfærslunar má sækja hér fyrir Mac og hér fyrir PC.
Námskeið
Jæja, þá er komið á hreint að fyrsta Lightroom námskeiðið verður haldið þann 10. febrúar næstkomandi. Námskeiðin eru haldin í samvinnu við Sense ehf að þessu sinni og kennt verður í húsnæði þeirra að Hlíðarsmára 3. Þar getum við tekið aðeins stærri hópa en setjum samt hámarkið við 10 manns. Það er mín reynsla að [...]
Lightroom föndur kvöldisins

Arndís vetrardama. Canon EOS 1Ds Mark III, EF 135mm f/2.0L Þessar myndir var ég að föndra við í Lightroom 2.0 kvöld. Með þessu áframhaldi hætti ég að nota Photoshop fljótlega! Annars er á planinu að halda ný Lightroom námskeið á nýju ári. Og í þetta sinn ætla ég að gera meira úr ljósmyndunni. Það verður [...]
Nú er ég svo aldeilis hlessa
Tveir hissa. Canon EOS 1Ds Mark III, EF 50mm f/1.2L Adobe tilkynntu um nýja betu af Lightroom 2.0 í gær. Ég sótti mér auðvitað eintak og þrátt fyrir að vera mjög snemmbúin beta lofar hún góðu. Helstu nýjungarnar eru: Smart Collections – Flokkun mynda út frá breytum sem notandinn ákveður, lifandi möppur þar sem myndir [...]
Er Lightroom best?

Þessa spurningu hef ég heyrt nokkuð oft. Fólkið sem spyr mig vill fá að vita hvort það eigi að skipta úr e-h öðru forriti til að vinna úr Raw skránum sínum. Það eru til fjöldamörg góð forrit til að vinna myndir í. Capture One frá PhaseOne er með þeim vinsælustu. Aperture frá Apple og Camera [...]
Myndasafnið og Lightroom

Ég fékk fyrirspurn frá Braga Bergþórssyni varðandi vistun mynda á útværum harðdiski og stuðning Lightroom við offline myndir. Bragi skrifar: Hugmyndin er semsagt að færa safnið af tölvunni yfir á utanáliggjandi harðan disk og spegla vikulega yfir á afritsdisk, eða þar um bil og geyma afritið þar á milli í eldföstu móti inni í örbylgjuofni… [...]
AMG, ekki bara bílar
Usss… vika síðan ég var hér á ferðinni síðast. Það er búið að vera mikið og gott að gera undanfarna daga. Ég var mest alla vikuna með henni Annette, blaðamanni frá Der Spiegel sem var að skrifa grein um feðraorlofið hér á landi. Hún var gríðarlega hrifin af landi og þjóð – og ekki síst [...]
Camera Raw 4.1

T-bone steik unnin í Camera Raw 4.1, frá myndatöku í Gallerí Kjöt í dag. Adobe hefur uppfært Camera Raw í útgáfu 4.1. Í stað hinnar hefðbundnu uppfærslu, sem inniheldur aðeins stuðning við nýjar myndavélar, er hér á ferðinni meiriháttar uppfærsla sem gerir Camera Raw, að mínu mati, besta hugbúnaðinn til að vinna með Raw skrár. [...]
Raw vs. JPEG

Í Lightroom er nú hægt að vinna JPEG, TIFF og PSD myndir með sömu tólum og áður var einungis hægt að nota á RAW skrár í Camera Raw og/eða öðrum forritum sem vinna úr RAW skrám. Því hefur vaknað spurning hjá mörgum hvers vegna þeir eiga að skjóta í RAW þar sem allir vinnslukostirnir eru [...]
Hvað er metadata?

File info glugginn í Photoshop CS2 Metadata er upplýsingar um stafrænar skrár, hvort heldur ljósmyndir eða önnur gögn á stafrænu formi. Hluti af þessum upplýsingum verða til við sjálfa myndatökuna, en vélin skráir upplýsingar eins og ljósop, lokarahraða, tíma og dagsetningu myndatöku og sitthvað fleira. Þessi sjálfvirka upplýsingasöfnun er gríðarlega þægileg og margir ljósmyndarar reiða [...]
Hugbúnaðaruppfærslur frá adobe

Adobe kynnti nýju “Sköpunarsvítuna” sína – Creative Suite CS3 með pompi og prakt í gær. Adobe segir að þetta sé stærsti dagur í sögu fyrirtækisins, enda var um að ræða 13 uppfærslur og í sumum tilfellum alveg ný forrit. Þetta eru ennfremur fyrstu sameinuðu forritin sem líta dagsins ljós eftir að Adobe keypti Macromedia. Fyrir [...]
Adobe Photoshop Lightroom

Þá er Lightroom 1.0 formlega komið út. Hægt er að nálgast 30 daga prufuútgáfu hér. Forritið hefur þroskast vel í gegnum betu-ferlið og virkar sprækt á nýja Intel iMac-anum mínum, jafnvel þegar unnið er með 16.5 MP skrár. Nýtt frá síðustu betu er m.a. að nú er hægt að klóna eða nota healing á rykbletti [...]
Lightroom tilbúið

Þá hefur Adobe kynnt endanlega útgáfu af Adobe Photoshop Lightroom, sem kemur í búðir í USA þann 19. febrúar. Beturnar af Lightroom renna út þann 28. febrúar. Það eru margir spenntir að komast að því hvort endanlega útgáfan verði hraðvirkari en beturnar hafa verið. Jafnvel á nýjustu ofurvélunum hafa menn verið að kvarta yfir hægagangi. [...]
Hversu margir böggar?

“Alla vega 6…” – Ari Carl, 3. desember 2006. Ef þið eruð að nota Lightroom saman með nýju Photoshop/Bridge CS3 betunni þá skuluð þið varast svolítið að eiga við metadata í Bridge. Alla vega ef þið vinnið með PSD skrár sem koma frá Lightroom í Bridge. Ég rak mig á þennan bögg – eða lús [...]
Litstýring 3. hluti
Skoðum nú hvernig litstýrikerfi eru uppbyggð. Þau eru samsett úr fjórum grunnþáttum: PCS ? Profile Connection Space. PCS gefur litum ótvírætt gildi í CIELAB sem er óháð breytum hinna ýmsu tækja sem við notum til að búa til liti. Það skilgreinir liti eins og við sjáum þá í raun og veru. Prófílar ? Prófíll lýsir [...]
Litstýring 2. hluti

Eins og áður er sagt eru RGB og CMYK litmódelin tækjaháð. Til allrar hamingju eru til litamódel sem eru ekki tækjaháð ? þ.e. tækjaóháð (e. device independent). Tækjaóháð litmódel nota tölur til að sýna fram á það hvernig maðurinn skynjar mismunandi liti. Árið 1931 skilaði CIE nefndin (CIE voru vísindamenn og aðrir fræðingar sem kortlögðu [...]
Litstýring 1. hluti

Ég hitti stundum fólk sem segist aldrei nota ICC prófíla. Gott og vel. Ef þú ert að nota Windows 95 og Photoshop 4 eða eldra er það alveg möguleiki. En ef viðkomandi er að nota nútíma stýrikerfi og hugbúnað er óhjákvæmilegt að hann sé að nota ICC prófíla og litstýrikerfi (CMS). Það má vel vera [...]
Anyone for Bridge?

Eftir að hafa notað Photoshop CS3 og Bridge CS3 beturnar svolítið eru nokkur atriði sem mig langar að deila með ykkur, svona til fróðleiks. Á heildina litið virðist þó vera frekar lítið af stórum vandamálum, alla vega fyrir þá sem eru enn með PowerPC vélar, eitthvað meira virðist hrjá nýju Intel vélarnar, eins og við [...]
Lofar góðu

Ég verð að segja að fyrstu skrefin í notkun á nýju sjoppunni lofa góðu. Ég hef reyndar ekki haft tíma til að kafa mjög djúpt, en það sem ég hef séð hingað til er ég afskaplega sáttur við. Ég tékkaði fyrst á aðalmálinu (fyrir mig alla vega). Eru Raw stillingar á milli Lightroom og ACR [...]
Nú betusjoppa

Þá er það orðið opinbert. Eftir einhverjar klukkustundir verður hægt að sækja nýja betu af Photoshop CS3 hér. Jább, ný sjoppa fyrir alla Intel makkana og einnig pésa – líka þá sem eru komnir með Vista. Búið ykkur undir að þurfa kannski að bíða svolítið. Ekki nóg með að þetta sé líklega vinsælasta forrit í [...]
Meira fótosjopp!

Ég fór á fótósjopp námskeið í gær og í dag. Námskeiðið var á vegum Prenttæknistofnunar í tengslum við ráðstefnu Xplor. Kennari á þessu námskeiði var Ben nokkur Wilmore. Ég fór aðallega á námskeiðið til að sjá hvernig hann nálgast hlutina. Ég kenni reglulega sjálfur og maður getur alltaf lært af öðrum, ekki síst öðrum kennurum. [...]
Beta 4 af Lightroom

Þá er komin fjórða betan af Lightroom. Athygli vekur að nú heitir forritið Adobe Photoshop Lightroom. Greinilegt að Adobe vill koma því til skila að þetta sé tól sem Photoshop notendur eigi að tileinka sér. Annars eru stærstu breytingarnar eru á Library og Develop hlutunum. Viðmótið hefur fengið andlitsliftingu sem í heildina er dekkra og [...]
Framsetning myndasýninga í tölvum

Ljósmyndasýningin frá Öræfunum sem ég setti saman um daginn hefur vakið töluverð viðbrögð. Ég veit til þess að í einu tilfelli varð það til þess að viðkomandi skráði sig ásamt maka í ferð með Hálendisferðum helgina á eftir. Ég viðurkenni að ég er monntinn yfir því. Svo virðist sem margir hafa ekki áttað sig á [...]
