Pælingar

Úlfur í sauðagæru

Úlfur í sauðagæru

Litla Canon S90 myndavélin er sannkallaður úlfur í sauðagæru. Lítur út eins og venjuleg vasamyndavél og virkar ekki fancy á að líta. En hún getur töluvert mikið meira en þær flestar. Myndgæðin koma skemmtilega á óvart og möguleikinn á að skjóta RAW býður enn meiri möguleika til að kreista allt út úr kvikindinu. Stærsta ljósop [...]


24mm í portrett?

Gleiðhornalinsur eru (of) oft misnotaðar. Netið er uppfullt af alls konar myndefni sem er skotið á mjög víðar linsur. Oft virðist mér það vera til þess eins að sýna fram á hversu víða linsu viðkomandi á! Landslag er oftast fórnarlamb þessarar misnotkunar. Vissulega eru til flottar landslagsmyndir skotnar á 14mm brennivídd. En þær eru nálin [...]


Öskudagur

Öskudagur

Ég þarf að játa svolítið. Ég skil ekki öskudag. Þessi dagur er eitthvað svo fáranlegur. Öskudagur er rakinn til kristni og er fyrsti dagur lönguföstu. Við erum búin að afbaka hann í einhvers konar hrekkjavöku! Á hrekkjavöku er verið að þakka fyrir uppskeru og boða komu vetursins. Hrekkjavökubúningarnir tengjast því að mörk heima hinna lifandi [...]


Canon EOS 1D Mark IV vs. Nikon D3s

Canon EOS 1D Mark IV vs. Nikon D3s

Canon vs. Nikon er svolítið eins og PC vs. Mac. Fyrir suma eru val á öðru hvoru merkinu umfram hitt trúarbrögð. Ég er ekki einn þeirra sem tek það persónulega þegar ný myndavél kemur á markað frá “hinum” sem er betri en mín. Ég vel það verkfæri sem ég tel hæfa best hverju sinni. Margir [...]


Mark IV – fyrstu kynni

Mark IV - fyrstu kynni

Ég er búinn að vera með Canon EOS Mark IV í láni í nokkra dag til reynslu. Ég hef reyndar haft bölvanlega lítinn tíma til að leika mér með hana sökum anna í námi, vinnu og fjölskyldu undanfarna daga. En ég náði nokkrum römmum um helgina síðustu við aðstæður sem ættu að gefa nokkuð góðar [...]


Hvað er portrett?

Hvað er portrett?

Ég sat í dómnefnd fyrir ljósmyndasýninguna “Mynd ársins 2009″ um síðustu helgi. Skemmtileg vinna og mikill heiður að fá taka þátt í að velja myndirnar. Með mér í dómnefnd sátu þau Pétur Thomsen ljósmyndari, Kjartan Dagbjartsson frá Nordic Photos og Max Houghton, ritstjóri hins virta tímarits 8 Magazine í Bretlandi. Við dómnefndarstörfin kom ýmislegt í [...]


Ballet á laugardegi

Ballet á laugardegi

Það var opið hús í ballettíma hjá Bjargey á laugardaginn var, en hún æfir bæði jazzballet og ballet hjá JSB. Ég notaði auðvitað tækifærið og tók nokkrar myndir. Það var svolítið snúið, enda frekar lítill salur og lítið hægt að velja sér ný sjónarhorn eftir að æfingin byrjar. Þegar ég var að vinna úr þessum [...]


MegaPixlar síðustu daga

MegaPixlar síðustu daga

Hvort skiptir meira máli, fjöldi pixla eða gæði þeirra? Ég hef séð 39 Megapixla myndir sem gera sig ekkert endilega betur stækkaðar en aðrar sem eru ekki nema 12 Megapixla. Framleiðendur myndavéla koma sífellt með nýjar útgáfur af vélum, sérstaklega í flokknum sem er ætlaður svokölluðum Prosumer, sem mætti þýða á íslensku sem faghugar. Svona [...]


Er grasið grænna?

Er grasið grænna?

Hingað til hef ég ekki fengið mikil viðbrögð við því að kaupa mér nýja myndavél, ekki einu sinni frá konunni. Því fannst mér það svolítið skondið þegar umræður fóru af stað á ljosmyndakeppni.is um kaup mín á Nikon D3s og “stórsölu” á Canon linsum. Áður hafði ég selt Canon 1Ds Mark III vél og nokkrar [...]


Catfight @ ISO 12800

Catfight @ ISO 12800

Það var D-dagur á föstudaginn. D3s-dagur nánar tiltekið. Ég átti nú ekki von á því vélin yrði afhent á Íslandi sama dag og hún fór formlega í sölu í Bandaríkjunum. Kom svona skemmtilega á óvart! Vélin er alveg hreint mögnuð. Tók þessa og nokkrar í viðbót seint á föstudagskvöldið af heimilisköttunum í sínu daglega tuski. [...]


Hliðruð snilld

Hliðruð snilld

Ég var svo heppinn að fá nýju Canon TS-E linsurnar lánaðar hjá Sense/Nýherja í vikunni. Um er að ræða uppfærslu á TS-E 24mm f/3.5L og glæný TS-E 17mm f/4L. Í stuttu máli eru þetta bestu gleiðhorna linsur fyrir Canon EOS sem hægt er að kaupa. Ég á eldri útgáfuna af 24mm linsunni og hef notað [...]


Græjutest > Nikon SU-800

Græjutest > Nikon SU-800

Ég fékk lánaðan Nikon SU-800 þráðlausan sendi fyrir flöss hjá Beco. Líkt og ST-E2 sendirinn frá Canon gerir SU-800 ljósmyndurum kleift að staðsetja flössin burt frá sjálfri myndavélinni og skapa þannig mun athyglsiverðari lýsingu og dýpt. Ég átti ST-E2 fyrir Canon á sínum tíma, en seldi hann fljótlega þar sem ég var aldrei öruggur hvort [...]


Gæðatími

Gæðatími

Hið margumrædda hrun hefur ekki bara slæmar hliðar. Það hefur skerpt sýn okkar á lífið og það sem skiptir raunverulega máli. Ég hugsa að ófá íslensk börn hafi endurheimt foreldra sína aftur. Það hljómar kannski heimskulega að segja að erfiðleikar hjálpi fólki. En það er hægt að komast í gegnum ótrúlega margt ef maður á [...]


ISO 102.400?

ISO 102.400?

Hvað er nú það? Nýr gæðastaðall? Nei, það er hæsta ljósnæmni sem nýja Nikon D3s getur unnið á. Á mannamáli – þú getur tekið myndir við aðstæður þar sem þú sérð varla til lengur. Nikon var lengi eftirbátur Canon þegar það kom að gæðum mynda teknar á háu ljósnæmni. Það breyttist þegar Nikon D3 kom [...]


Réttara histogram

Réttara histogram

Það getur verið hættulegt að dæma þéttleika mynda eingöngu út frá því hvernig þær koma út á skjánum á myndavélinni. Til að átta okkur á því nákvæmlega hvernig lýsingin liggur notum við svokallað Histogram. Histogram sýnir fjölda pixla eftir birtustigi þeirra. Við lesum úr þeim þannig að eftir lárétta ásnum höfum við birtustigið frá svörtu [...]


Hvíld

Hvíld

Ég velti því fyrir mér hvort þjóðin þurfi ekki að fá hvíld frá þessum ofurkapítalisma? Ekki virðumst við hafa lært mikið af síðustu risaframkvæmd, sem átti að skapa svo mörg störf og snúa við byggðarflótta frá Austurlandi. Af hverju höfum við ekkert lært? Hvers vegna er orkufrek stóriðja það eina sem kemst að? Hvers vegna [...]


Eigum við að flýja land?

Eigum við að flýja land?

Var búinn að gleyma þessu portretti sem ég tók af vini mínum Andra Snæ á Sléttunni sumarið 2006. Hún er tekin á Oddstöðum, Ættaróðalinu sjálfu. Ég man eftir því að við pældum mikið í myndinni. Hún er auglýsing frá Canadian Pacific Line, sem flutti ófáan Íslendinginn í Vesturheim – til betra lífs. Það er súrrelaískt [...]


Hraði

Hraði

Það eru sennilega merki um að maður er farinn að eldast, en mér finnst tíminn líða of hratt (á gervihnattaröld). Ég þarf að hafa mig allan við að láta ekki verkefnin sem bíða trufla mig við verkefnin sem ég er að vinna við hverju sinni. Verkefnalistinn er reyndar fullur af skemmtilegum viðfangsefnum. Það má kalla [...]


Draumalandið frumsýnt

Draumalandið frumsýnt

Dagurinn er runninn upp. Í kvöld verður Draumalandið frumsýnt í Háskólabíó. Það eru blendnar tilfinningar í brjósti. Mikil tilhlökkun að sjálfsögðu, en um leið rifjast upp fyrir mér hvernig mér leið sumarið 2006. Þá fór ég tvisvar um öræfi Austurlands, í seinna skiptið með Andra Snæ sem var ásamt Þorfinni að skjóta efni fyrir myndina. Á [...]


Óli trommuheili

Óli trommuheili

Milford sound – Fiordland National Park  © Ólafur Haraldsson. Ólafur Haraldsson er ferskur fýr sem ég kynntist fyrst þegar ég var að kenna Photoshop ACE námskeiðið hjá NTV. Óli var einn af nemendunum, en ég sá nú fljótt að það var nú fátt sem hann kunni ekki fyrir námskeiðið! Það er töluvert vatn runnið til [...]


Shortcuts

Shortcuts

Reglurnar eru fyrir aðra. Canon EOS 5D Mark II, EF 85mm f/1.2L II Við íslendingar erum ekki þolinmóð þjóð. Okkur fannst því ekki skrítið að hagkerfið skildi þenjast út á skömmum tíma. Það var frekar merki um dugnað og útsjónarsemi en hugsanlega fljótfærni. Við vorum svo klár að finna nýjar og skilvirkari leiðir.  Vorum laus [...]


Hliðræn endurholgun

Hliðræn endurholgun

Endurholgun? Hasselblad 503CW, Planar 80mm f/2.8 Fyrir þá sem trúa á endurholgun þá er ómögulegt að ætla annað en að í einhverju lífi sé maður fugl. Ég meina, hversu margar dýrategundir para sig fyrir lífstíð? Þá er spurning: Hvar vill maður vera – sem fugl – með sinni heittelskuðu? Í mínu tilfelli er því auðsvarað: [...]


Steinliggur?

Steinliggur?

Steinhjarta á Hellnum. Canon EOS 1Ds Mark III, EF 16-35mm f/2.8L II Þá er athugasemdakerfið komið aftur í gagnið og búið að laga svolítið til. Er þetta nýja útlit að gera sig?


Nýja lúkkið

Nýja lúkkið

Bjargey Groovy Girl. Nikon D1x, Nikkor 28-70mm f/2.8 AF-S. Nú skal skipt um útlit á vefnum. Ég réðst í þessar breytingar í dag af algerri tilviljun, þökk sé Óla Har. Hann benti mér á þetta öldungis fína WordPress Theme og aðstoðaði mig við uppfærsluna. Það eru nokkrir hnökrar ennþá til staðar, t.d. virkar ekki athugasemdakerfið, [...]