Litríkt brúðkaup

Mig langar að sýna ykkur fleiri myndir frá brúðkaupi Namitu og Gumma í San Fransisco. Ég sagði ykkur fyrst frá þessu verkefni hér. Indversk brúðkaup taka nokkuð lengri tíma en þau vestrænu og því eru þessar myndir teknar á þremur dögum. Þau eru líka afar litrík eins og sjá má, fáar s/h myndir sem koma [...]
Cindy og Russ

Þau Cindy og Russ giftu sig um daginn heima á Flordia og ákváðu svo að fara í brúðkaupsferð til Íslands. Þegar þau höfðu samband var ég meira en til í að taka að mér verkefnið. Svona brúðkaupstökur eru mikil tilbreyting miðað við þær íslensku. Hér er hefðin þannig að flestir velja sumarbrúðkaup og vilja myndatöku [...]
Fljúgandi feðgar

Við pabbi fórum í smá ljósmyndaflug í gær. Það sem var sérstakt var að við fórum í fyrsta skipti í Aerospatiale Dauphin AS-365 N2 – öðru nafni TF-EIR. Verkefnið var fyrir Siglingamálastofnun að ljósmynda hafnir Reykjavíkur. Það var gullfallegt veður í gær og smá norðanátt sem kom lítið að sök. Flugið var silkimjúkt á þessari frábæru [...]
Sigrún og Elvar

Þann 10. október síðastliðinn gengu vinir okkar, Sigrún og Elvar, í hjónaband. Eins og vaninn er í vinahópnum sá ég um ljósmyndun. Ég er stundum spurður að því hvort mér finnist það þreytandi að vera alltaf beðinn um að taka myndirnar. Vissulega velti ég því stundum fyrir mér hvernig það sé að sitja bara í [...]
Þýski spegilinn

Ég var á flakkinu með þýskum blaðamanni mestan part síðustu viku. Hann var frá Der Spiegel, en ég hef unnið reglulega fyrir þá undanfarin ár – síðast í febrúar. Þá var verið að fjalla um hrunið (hvað annað) út frá vinklinum: “Ísland- tilraunarstofa alþjóðlega efnahagshrunsins”. Nú var sem sagt verið að fylgja því eftir og [...]
Toppstöðin

Ég fór í dag inn í Toppstöðina í Elliðaárdal. Fyrir þá sem ekki vita hvað ég er að tala um þá hefur stöðin líka gengið undir nafninu “Ljóta brúna húsið”. Toppstöðin eða varaaflstöðin í Elliðaárdal var hluti af stofnframlagi Reykjavíkurborgar til Landsvirkjunar við stofnun fyrirtækisins árið 1965. Um árabil skilaði aflstöðin mikilvægri raforkuframleiðslu á álagstímum [...]
Lauren og Zach

Á mánudaginn var ljósmyndaði ég skemmtilegt brúðkaup. Þau Lauren Chitwood og Zach Schauf ákvaðu að koma til Íslands til að gifta sig. Með þeim komu nánasta fjölskylda og vinir, tæplega 20 manna hópur í allt! Í Bandaríkjunum er algengt að ljósmyndarar skrásetji allan daginn, allt frá undirbúningi til loka veislu. Ég býð erlendum viðskiptavinum því [...]
Vorverkin á Hverfisgötunni

Maí mánuður markar upphaf sumars, þó að sumardagurinn fyrsti sé fyrir löngu liðinn. Þessi mánuður hefur verið góður hjá mér, allar götur síðan ég hóf að prenta og taka að mér sýningar ýmis konar. Ég verð ekki var við mikinn samdrátt í ár, þrátt fyrir bölið sem dynur á manni alla daga. Menning og listir [...]
DIM 41

Í föstudaginn í síðustu viku var ég fluga á vegg á æfingu hjá frábærum tónlistarmönnum. Jazztríóið ber vinnuheitið DIM 41, en þeir æfa nú efni eftir Árna Heiðar Karlsson, sem er arkitektinn af tríóinu. Tríóið skipa: Árni Heiðar Karlsson á píanó, Gunnar Hrafnsson á kontrabassa og Matthías Hemstock á trommur. Hér má svo finna vefgallery [...]
Heilsuvernd

Handþvottaferðalag í tómri sjúkrastofu. Canon EOS 5D Mark II, TS-E 24mm f/3.5L Ég var að ljósmynda eitt fallegasta húsið í bænum í gær, gömlu Heilsuverndarstöðina við Barónstíg. Mér fannst það undarlegt að borgin skyldi selja húsið á sínum tíma. Svona einstakar byggingar eiga að hýsa opinbera þjónustu. Nú stendur það autt. Það var mjög sérstakt [...]
Undirbúningur

Litafletirnir skoðaðir. Canon EOS 5D Mark II, EF 50mm f/1.2L Þá er ég byrjaður að undirbúa prentun á árlegri sýningu Blaðaljósmyndarafélags Íslands. Sýningin fer ekki varhluta af efnahagsástandinu. Myndum fækkar úr rúmlega 220 í kringum 170. Ég er reyndar á því að það sé alls ekki slæmt. Fyrir vikið þarf dómnefndin að leggja harðar að [...]
Allir fá þá eitthvað fallegt

Hildur. Canon EOS 1Ds Mark III, EF 70-200mm f/2.8L IS Nú er tími barna- og fjölskyldumyndanna. Nóg að gera flestum ljósmyndurum að mynda gríslingana. Ömmur og afar fá ósjaldan myndir af barnabörnunum um jól. Það er í sjálfu sér ágætis hefð. En að öðru leyti fer lítið fyrir hefðum hjá okkar þjóð þegar kemur að [...]
Helga og Ásmundur

Palli flottur að venju. Canon EOS 1Ds Mark III, EF 35mm f/1.4L Þau Helga og Ásmundur gengu í það heilaga 25. október síðastliðinn. Flott par sem átti mjög fallegan dag, athöfn í Háteigskirkju, myndataka í studio á eftir (það var of kalt fyrir útimyndatöku) og svo veislan í turninum við Smáratorg. Páll Óskar sá um [...]
Þreföld ánægja

Hlini Snær. Canon EOS 1Ds Mark III, EF 85mm f/1.2L II Um helgina fór ég í frekar óvenjulega barnamyndatöku. Ég ferðaðist til Oslo til að mynda þar 10 mánaða gamla þríbura. Þau Birkir, Hlini og Karítas létu mig hafa fyrir hlutunum, líkt og gengur með 10 mánaða gömul börn. En venjulega er það bara eitt [...]
Ragna og Bragi

Kjóllinn lagaður fyrir stóru stundina. Canon EOS 1Ds Mark III, EF 35mm f/1.4L Ég var að klára myndvinnslu á brúðkaupi Rögnu og Braga sem ég ljósmyndaði hinn örlagaríka dag 13. september. Það var sama dag og ég lenti í bílslysinu. Ég man lítið sem ekkert frá deginum og því var svolítið sérstök upplifun að vinna [...]
Öðruvísi brúðkaup

Undanfarin ár hef ég ljósmyndað nokkuð af erlendum gestum sem koma hingað til Íslands til að gifta sig. Ég veit reyndar ekki alveg hvernig þau rata til mín, þar sem heimasíðan mín er jú 99% á íslensku, en hvað nú um það. Þessi verkefni eru alltaf mjög skemmtileg og gefandi fyrir mig sem ljósmyndara. Oftast [...]
710 Seyðisfjörður

Skaftfell á Seyðisfirði. Canon EOS 1Ds Mark III, EF 50mm f/1.2L Ég skellti mér til Seyðisfjarðar á sjálfan þjóðhátíðardaginn (okkar Norðmanna) í tengslum við opnun sýningar Skyr Lee Bob í Menningarmiðstöðinni Skaftfelli. Frábær ferð, sýningin lukkaðist vel og partýið á eftir ekki síður! Ég fór í smá gönguferð fyrir sýninguna og tók þessar myndir. Seyðisfjörður [...]
Á kafi

Ari í baði. EOS 1Ds Mark II, EF 50mm f/1.2L Ég er kafi í vinnu þessa daganna og því lítill tími til að uppfæra hér. Náði þó að skella Flateyjarmyndum inn í galleryið og nokkrum myndum af púkanum síðan um daginn. Annars er ég upp fyrir haus í prentverkefnum og ljósmyndaúrvinnslu. Bara stuð. Já – [...]
Janúarlæti

Samkeppni í Garðakirkju. EOS 1Ds Mark III, EF 35mm f/1.4L Janúar kemur heldur á óvart í ár. Brúðkaup alla laugardaga og einn föstudagur að auki! Þessi árstími er auðvitað erfiðari varðandi ljósmyndunina; bæði kemur lítið sem ekkert dagsljós inn um glugga á kirkjunum og myndatökur utandyra eftir athöfn eru ekki beint auðveldar. Þó er ég [...]
Þægileg innivinna

Verkefni dagsins. EOS 1Ds Mark II, EF 135mm f/2.0 L Stundum þakkar maður fyrir þægilega innivinnu. Ekki síst eins og veðrið er búið að vera í dag. Mynd dagsins er því af verkefni dagsins. Brúðkaup frá 29. desember til vinnslu í Lightroom. Ekki seinna vænna en að vinna úr því, annað brúðkaup á laugardaginn kemur [...]
80′s

Getur e-h sagt mér afhverju tískan fer í hringi? Hvernig getur það gerst að svona íþróttaföt verða aftur töff? Myndin er úr verkefni sem ég vann í vor fyrir Sýrland í tengslum við 80′s safnplötu. Við hlógum alveg ógurlega af fatnaðnum og förðuninni á meðan tökum stóð. En ég sver að ég sé orðið daglega [...]
Ég er á lífi

Systkinin Katla, Svava og Breki í Elliðaárdalnum 16. júní síðastliðinn. Jæja, kannski kominn tími til að láta vita að maður sé á lífi? Ég er búinn að vera asskoti magnaður síðan síðast. Fluttur í nýtt húsnæði með fjölskylduna og meira að segja búinn að koma mér þokkalega fyrir. Búinn að ljósmynda þónokkur brúðkaup og skrapp [...]


