Björgum Bitru!

Á morgun 3. október rennur út frestur til að skila athugasemdum vegna nýs skipulags í Ölfus þar sem gert er ráð fyrir jarðvarmavirkjun við Bitru á Hellisheiði. Ef af virkjuninni verður mun frábært útivistarsvæði verða eyðilagt auk þess sem hún mun hafa verulega neikvæð áhrif á lífsgæði í Hveragerði og þeim hluta Ölfuss sem umlykur [...]
Hvað vantaði?
Það var fjallað um það í fréttum í kvöld að okkar ágæti gönguhrólfur Páll Ásgeir Ásgeirsson hafi verið á ferðinni um Jökulsá á Fljótsdal nýlega og komið að ánni svo gott sem þurri. Við myndun Ufsalóns Kárahnjúkavirkjunar var áin stífluð, og vatnið tekið af einni fegurstu fossaröð landsins. Hér að ofan gefur að líta hluta [...]
Gjástykki

Langaði að gefnu tilefni deila með ykkur nokkrum myndum frá því í fyrrasumar frá hrauninu við Gjástykki. Gjástykki heitir sundursprunginn sigdalur norður frá Kröflu-kötlunni. Þar gaus í Kröflueldum, en þeir voru hrina eldgosa og kvikuhlaupa sem áttu sér stað við Kröflu frá 20. desember 1975 til 18. september 1984. Þessi staður er ekki í alfaraleið [...]
Innstidalur

Það er stundum sagt að Hellisheiðin sé of nálægt Reykvíkingum til þess að þeim þyki vænt um hana. Ég hugsa að það sé mikið til í því. Í hugum margra er segir orðið Hellisheiði bara: “Vegurinn sem ég ek til að komast austur”. Við hjónin fórum í smá ferðaleg með son okkar í dag (systurnar [...]
Íslensku hryðjuverkin

Faxi í Norðurdal. Canon EOS 5D, EF 17-40mm f/4.0L Í dag 11. september 2008 verður byrjað að stífla Jökulsá á Fljótsdal og Ufsalón verður til. Ufsalón er svokallað inntakslón og agnarsmátt í samanburði við Hálslón. Það verður um 1 ferkílómetri að stærð. Þessi aðgerð er ein af framkvæmdum Kárahnjúkavirkjunnar. Jökulsá á Fljótsdal fellur um Norðurdal [...]
Tíminn líður hratt

…þegar nóg er að gera og því löngu kominn tími á færslu hérna. Auðvitað er gott að hafa nóg að gera þegar maður starfar sjálfstætt. En maður þarf að passa jafnvægið. Það getur verið snúið fyrir svona trommuheila eins og mig sem starfar við áhugamálið. Í gær tók ég nóg af myndum alla vega. Fór [...]
Rauðaflúð að hverfa

Andri var að hringja. Hann var nýbúinn að tala við Raxa sem er fyrir austan. Rauðaflúð er víst að hverfa í þessum rituðum orðum undir Hálslón. Ég tók þessa mynd af Margréti Vilhjálmsdóttur leikkonu við Rauðuflúð í sumar. Magnaður krafturinn og um leið ótrúleg fegurðin í Jöklu fer ekki fram hjá manni á þessari mynd. [...]
Svartur dagur

Dagurinn í dag er svartur dagur fyrir Íslendinga í tvennum skilningi. Borgin verður myrkvuð í kvöld til að borgarbúar fái tækifæri til að skoða stjörnurnar. Ljósmengun borgarinnar kemur almennt í veg fyrir að við sjáum annað en björtustu stjörnurnar. Hugmyndin hans Andra Snæs verður að veruleika. Geggjuð hugmynd sem reyndist samt furðu auðvelt að framkvæma. [...]
Göngum með Ómari

Nú er tækifæri fyrir okkur sem teljum framkvæmdirnar við Kárahnjúka vera stærstu mistök Íslandssögunar að sýna samstöðu í verki. Boðað er til fjöldagöngu með Ómari Ragnarssyni frá Hlemmi að Austurvelli klukkan 20.00 á þriðjudag. Ómar hefur kynnt hugmyndir um nýjar leiðir sem fela í sér að hægt verði að afla raforku til að knýja álverið [...]
Ljósmyndasýning á menningarnótt

Það verður haldin ljósmyndasýning í portinu við hliðina á Hljómalind kaffihúsi í kvöld. Þar sem notast er við skjávarpa úti við verður líklega best að skoða þetta eftir kl 21.00. Þetta er samstarfverkefni nokkurra manna sem eiga það sameiginlegt að hafa farið í gönguferðir um áhrifasvæði Kárahnjúkavirkjunnar. Hugmyndina átti Hugi Guðmundsson og það var Andri [...]
