Litríkt brúðkaup

Mig langar að sýna ykkur fleiri myndir frá brúðkaupi Namitu og Gumma í San Fransisco. Ég sagði ykkur fyrst frá þessu verkefni hér. Indversk brúðkaup taka nokkuð lengri tíma en þau vestrænu og því eru þessar myndir teknar á þremur dögum. Þau eru líka afar litrík eins og sjá má, fáar s/h myndir sem koma [...]
Úlfur í sauðagæru

Litla Canon S90 myndavélin er sannkallaður úlfur í sauðagæru. Lítur út eins og venjuleg vasamyndavél og virkar ekki fancy á að líta. En hún getur töluvert mikið meira en þær flestar. Myndgæðin koma skemmtilega á óvart og möguleikinn á að skjóta RAW býður enn meiri möguleika til að kreista allt út úr kvikindinu. Stærsta ljósop [...]
24mm í portrett?
Gleiðhornalinsur eru (of) oft misnotaðar. Netið er uppfullt af alls konar myndefni sem er skotið á mjög víðar linsur. Oft virðist mér það vera til þess eins að sýna fram á hversu víða linsu viðkomandi á! Landslag er oftast fórnarlamb þessarar misnotkunar. Vissulega eru til flottar landslagsmyndir skotnar á 14mm brennivídd. En þær eru nálin [...]
Þyrluþjónustan
Ég eyddi þriðjudeginum í að rúnta um Suðurland á þyrlu og ljósmynda fyrir Þyrluþjónustuna. Ég get alveg ímyndað mér leiðinlegri verkefni…
Litlir kassar

Rölti í kvöld út á Olís með Ara Carl til að kaupa ís handa kauða. Tók vélina með og fangaði litla úthverfiskassa. Meira hér.
Gummi og Namita

Stundum fær maður verkefni sem eru ævintýri. Brúðkaupið þeirra Namtiu Kapoor og Guðmundar Vigfússonar um síðustu helgi í San Francisco var eitt af þeim. Gumma hef ég þekkt síðan ég réði hann til starfa í Diktu forðum daga, en hann var þá að læra ljósmyndun og var asskoti efnilegur, auk þess að vera með eindæmum [...]
Eldgos @ ISO 25.600

Fyrir ekki löngu síðan hefði verið ómögulegt að ná nothæfri mynd við svona aðstæður. Klukkan er 21.39 að kveldi 19. apríl og ég er staddur í Cessnu Hawk yfir Eyjafjallajökli. Birtan er alveg að hverfa, við fljúgum á um 90 hnúta hraða með opinn glugga og ég tek þessa mynd á ISO 25.600 á Nikon [...]
Úr eldinum í ösku

Ég fór aftur í eldgosafýlu. Komst ekkert í seinna gosið fyrr en á sunnudaginn var. Móðir náttúra er ekkert að spyrja mann að verkefnastöðu áður en hún ákveður næsta gigg. Við Andri fórum í öskuna og í magnað flug með Daníel yfir Eyjafjallajökul í ljósaskiptunum. Ég hef lítið geta unnið úr þessu ennþá, en setti [...]
Smá mont

Það er nú ekki á hverjum degi sem National Geographic hefur samband og vill kaupa af manni myndir. Skammast mín því ekkert fyrir því að monta mig aðeins! Hér er umfjöllunin á vef National Geographic.
Hæ Gosi!

Ég fór með frábærum hópi aftur upp á Fimmvörðuháls á þriðjudaginn var. Þá fannst mér krafturinn aðeins minni í gosinu. Það kom því skemmtilega á óvart að ný sprunga skildi svo opnast í gær. Ný fyrirsæta hlýtur að kalla á nýjar myndir? En nú þarf ég víst að sinna öðrum verkefnum um stund. Hér er [...]
Meira gos!

Meira gos í tvennum skilningi. Ég er búinn að vinna fleiri myndir frá föstudeginum og svo er ég á leiðinni aftur austur á morgun!
Fimmvörðuhálsinn

Eftir missheppnaða tilraun fyrstu gosnóttina var ég búinn að vera í nettri eldgosafýlu. Hún var þó fljót að hverfa þegar ég komst í flugferð með Jóni Spaða. Hann er fáranlega fær þyrluflugmaður og þrátt fyrir að vera ekki í eiginlegu ljósmyndaflugi náði ég mynda í gegnum pínulítinn glugga fram í. Ekki alveg til aur í [...]
Cindy og Russ

Þau Cindy og Russ giftu sig um daginn heima á Flordia og ákváðu svo að fara í brúðkaupsferð til Íslands. Þegar þau höfðu samband var ég meira en til í að taka að mér verkefnið. Svona brúðkaupstökur eru mikil tilbreyting miðað við þær íslensku. Hér er hefðin þannig að flestir velja sumarbrúðkaup og vilja myndatöku [...]
Hvað er portrett?

Ég sat í dómnefnd fyrir ljósmyndasýninguna “Mynd ársins 2009″ um síðustu helgi. Skemmtileg vinna og mikill heiður að fá taka þátt í að velja myndirnar. Með mér í dómnefnd sátu þau Pétur Thomsen ljósmyndari, Kjartan Dagbjartsson frá Nordic Photos og Max Houghton, ritstjóri hins virta tímarits 8 Magazine í Bretlandi. Við dómnefndarstörfin kom ýmislegt í [...]
Myndaskjólið

Þeir sem hafa heimsótt síðuna undanfarið hafa kannski ratað á krækjur sem ekki virka. Ástæðan er sú að ég var að breyta um hýsingaraðila á síðunni. Borga núna svipað á ári og ég gerði á mánuði. Mæli eindregið með 1984.is fyrir þá sem eru að leita sér að ódýrum og góðum hýsingaraðila hér innanlands. Í [...]
Áhugaverð sýning

© Þjóðminjasafn Íslands GÁ-2073 Í dag opnar áhugaverð ljósmyndasýning í bogasal Þjóðminjasafnsins. Sýningin heitir “Þrælkun, þroski, þrá?” og fjallar um börn við vinnu á sjó og landi. Ætlunin er að vekja okkur til umhugsunar um vinnumenningu og barnauppeldi á 20. öld. Allir vita að börnin tóku snemma þátt í ýmsum störfum, en ég hugsa að [...]
Ferningslaga kúrvur

Hasselblad 503CW, Planar 80mm f/2.8, Ilford HP5 Hasseblad 503CW, Planar 80mm f/2.8, Fuji NPH
Þess virði

Hér er ljósmyndasýning eða öllu heldur falleg saga sem er alveg þess virði að skoða. Myndir og texti eftir Phillip Toledano.
Fötudagspósturinn

Tölvutrítill vandar sig. EOS 1Ds Mark III, EF 85mm f/1.2L II Var að skoða heimasíðu hjá góðum ljósmyndara, eftir að hafa lesið grein um hann í síðasta PDN. Tékkið endilega á Scott Peterman. Myndirnar eru reyndar svolítið loðnar á síðunni hans og gefa því ekki alveg nógu vel til kynna gæði myndanna. Scott myndar nefnilega [...]
Lomo

Tívolístemning í Köben. Lomo LC-A + og tvílýst Fuji filma. Jæja, þá er ég búinn að setja upp smá myndaröð frá Köbenferðinni. Þetta er allt tekið á Lomo LC-A + og svo skrifa ég einhverja misgáfulega myndatexta. Asskoti skemmtileg ferð eins og sjá má.
Ljósmyndasýningar

Á morgun opna tvær ljósmyndasýningar. Sú fyrri er sýning á fréttaljósmyndum úr blaðaljósmyndasafni 365 miðla sem Ljósmyndasafn Reykjavíkur tók við til varðveislu sumarið 2006. Um er að ræða ríflega 150 myndir frá 1960 – 2000 frá síðdegisblöðunum Vísi (1961 – 1981), Dagblaðinu (1975 – 1981) og DV (1981 – 2002). Ég er reyndar búinn að [...]



