Daglegt líf

Vika á Norðurlandi

Vika á Norðurlandi

Þá erum við búin að vera rúma viku hér á Ytri-Bakka við Hjalteyri. Dásamlegur staður og veðrið er þvílíkt búið að leika við okkur. Sjósundið í morgun var æðislegt, ekki síst þegar sást til hnísu í cirka 50m fjarlægð frá mér. Þær voru nokkrar saman, sjálfsagt að gæða sér á makríl sem virðist vera í [...]


Loksins sumarfrí!

Loksins sumarfrí!

Þá er maður kominn í langþráð sumarfrí. Við fjölskyldan ætlum að dvelja á Norðurlandi næstu tvær vikurnar, en hér við leigðum fallegt hús á Ytri-Bakka rétt við Hjalteyri. Við ætlum okkur að vera hjólafólk í sumar, allir eru með reiðfákana sína með þökk sé Thule (ekki bjórnum). Þegar ég lagði af stað úr Reykjavík í [...]


Fjallahjólaflipp

Fjallahjólaflipp

Bjargey fékk nýtt hjól í dag. Það er af sem áður var að maður fái sæmilegt fjallahjól fyrir 30-40 þúsund. Prísinn fyrir gott hjól í dag er næstum tvisvar sinnum það takk fyrir! Fórum í Örninn enda ber sú verslun af þegar kemur að reiðhjólum. Oft verið meira úrval af alvöru hjólum. Væntanlega fáir sem eru [...]


Litlir kassar

Litlir kassar

Rölti í kvöld út á Olís með Ara Carl til að kaupa ís handa kauða. Tók vélina með og fangaði litla úthverfiskassa. Meira hér.


Gummi og Namita

Gummi og Namita

Stundum fær maður verkefni sem eru ævintýri. Brúðkaupið þeirra Namtiu Kapoor og Guðmundar Vigfússonar um síðustu helgi í San Francisco var eitt af þeim. Gumma hef ég þekkt síðan ég réði hann til starfa í Diktu forðum daga, en hann var þá að læra ljósmyndun og var asskoti efnilegur, auk þess að vera með eindæmum [...]


Góður við dýr og gamalmenni

Góður við dýr og gamalmenni

Volcanic Erection

Volcanic Erection

Úr eldinum í ösku

Úr eldinum í ösku

Ég fór aftur í eldgosafýlu. Komst ekkert í seinna gosið fyrr en á sunnudaginn var. Móðir náttúra er ekkert að spyrja mann að verkefnastöðu áður en hún ákveður næsta gigg. Við Andri fórum í öskuna og í magnað flug með Daníel yfir Eyjafjallajökul í ljósaskiptunum. Ég hef lítið geta unnið úr þessu ennþá, en setti [...]


Smá mont

Smá mont

Það er nú ekki á hverjum degi sem National Geographic hefur samband og vill kaupa af manni myndir. Skammast mín því ekkert fyrir því að monta mig aðeins! Hér er umfjöllunin á vef National Geographic.


Píslarsund

Píslarsund

Við Bjargey fórum í smá píslarsund ásamt góðum vinum í dag. Ég man þegar ég var púki hvað föstudagurinn langi stóð ætíð undir nafni. Laaaaangdreginn dagur. Allt lokað og svona. Í dag var hægt að skella sér í sjósund. Hrikalega hressandi. Hér eru fleiri myndir.


Meira gos!

Meira gos!

Meira gos í tvennum skilningi. Ég er búinn að vinna fleiri myndir frá föstudeginum og svo er ég á leiðinni aftur austur á morgun!


Er alltaf gott veður á Akureyri?

Við Árni fórum norður um helgina. Ætlunin var að fara í Hlíðarfjall og renna sér svolítið á skíðum. Það var nebblega búið að segja okkur að það væri alltaf gott veður á Akureyri og að skíðasvæðið væri opið hátt í þrjú hundruð daga á ári. Við brunuðum norður á föstudeginum á Lund Rover, náðum í [...]


Flottur árangur

Flottur árangur

Ég er svo stoltur af Bjargey, elstu dóttur minni. Þessi elska vann upplestrarkeppni í skólanum sínum dag. Ég er búinn að fylgjast með henni við undirbúningin undanfarna daga, heyra í henni lesa upphátt fyrir sjálfa sig kvöld eftir kvöld. Í gærkvöldi sagði hún mér að hún kynni orðið textann utanbókar, svo oft var hún búin [...]


Öskudagur

Öskudagur

Ég þarf að játa svolítið. Ég skil ekki öskudag. Þessi dagur er eitthvað svo fáranlegur. Öskudagur er rakinn til kristni og er fyrsti dagur lönguföstu. Við erum búin að afbaka hann í einhvers konar hrekkjavöku! Á hrekkjavöku er verið að þakka fyrir uppskeru og boða komu vetursins. Hrekkjavökubúningarnir tengjast því að mörk heima hinna lifandi [...]


Takk fyrir okkur!

Takk fyrir okkur!

Fjölskyldan Sandavaði þakkar kærlega fyrir sig. Allir í skýjunum með fallegar gjafir frá fjölskyldu og vinum. En líka takk fyrir samveruna í öllum jólaboðunum, sem reyndar er ekki lokið því í dag er jólaball á ‘prentó’ í anda ömmu Önnu og afa Ellerts. Ég tók saman smá myndapakka með myndum frá undirbúningi á þorláksmessu, aðfangadegi [...]


Jólaveiðar

Jólaveiðar

Það er náttúrulega fáranleg hugmynd að setja upp risastórt leikfang í stofunni fyrir tvo unga fressketti og ætlast til þess að þeir afneiti fyrirfram forrituðu eðli sínu. Reyndar er nokkur munur á þeim félögum Mikka og Sólmundi. Mikki er greinilega meiri veiði- og skógarköttur en Sóli og var kominn undir tréð um leið og það [...]


Norskur skógarköttur?

Norskur skógarköttur?

Það voru taldar góðar líkur á því að pabbi hans Mikka væri norskur skógarköttur því hann er svolítið “fluffy”. Okkur sýnist grunurinn á rökum reistur.


Þrír litlir grísir

Þrír litlir grísir

Laufabrauð í Rauðavaði

Laufabrauð í Rauðavaði

Við fórum í laufabrauðsgerð til Bengó, Þrása og Betu í gær. Allir voru sammála um að laufabrauðið væri sérlega vel heppnað í ár. Það var sérstaklega vel skorið og steiktist jafnt. Það er mikilvægt að pikka vel eftir skurð. Annars verður brauðið bólgið og ljótt við steikingu. Svili er mikill ástríðumaður þegar kemur að laufabrauði. [...]


Lítill aðstoðarmaður í hellinum

Lítill aðstoðarmaður í hellinum

Nú eru skólarnir komnir í jólafrí. Þá fær maður 6 ára aðstoðarmann í vinnuna. Ekki ónýtt það skal ég segja ykkur. Sérstaklega þegar bölvaðir prentararnir hlýða ekki skipunum og pabbinn er að fara á límingunum yfir öllu því sem eftir á að dæla út fyrir jólin. Þá er tekin pása og farið í göngutúr upp [...]


Dejlige æbleskiver

Dejlige æbleskiver

Það er orðin hefð í vinahópnum að hittast heima hjá Freysa og Veru í julefrokost. Við mætum með börnin og allir með einhverjar kræsingar á borðið. Ekki laust við að jólaskapið sé farið að detta inn. Næsta vika verður vel þéttbókuð, ritgerðarskil í leiðsögunáminu + verkefni, slatti af myndatökum og úrvinnsla úr öðrum. Hér má [...]


Síðasta kvöldmáltíðin?

Síðasta kvöldmáltíðin?

Nei, bara lokaspretturinn í 6 ára afmæli. Sykurstjarfinn orðinn vel sýnilegur.


CatTV

CatTV

Það er ódýrast að skemmta sér heima.


Julefrokost

Julefrokost

Nú eru vinahópurinn farinn að plana Julefrokost. Myndin hér af henni Kristínu Lovísu með páskakanínuna í julefrokost var einmitt tekin fyrir tæpu ári síðan. Eftir kræsingarnar fórum við með krakkana út að sýna þeim kanínurnar hjá Sindra og Baldvin. Er að fíla þessa kanínu. Nettur pönkari í henni að ulla á réttu augnabliki. Rosalega leið [...]