Vika á Norðurlandi

Þá erum við búin að vera rúma viku hér á Ytri-Bakka við Hjalteyri. Dásamlegur staður og veðrið er þvílíkt búið að leika við okkur. Sjósundið í morgun var æðislegt, ekki síst þegar sást til hnísu í cirka 50m fjarlægð frá mér. Þær voru nokkrar saman, sjálfsagt að gæða sér á makríl sem virðist vera í [...]
Loksins sumarfrí!

Þá er maður kominn í langþráð sumarfrí. Við fjölskyldan ætlum að dvelja á Norðurlandi næstu tvær vikurnar, en hér við leigðum fallegt hús á Ytri-Bakka rétt við Hjalteyri. Við ætlum okkur að vera hjólafólk í sumar, allir eru með reiðfákana sína með þökk sé Thule (ekki bjórnum). Þegar ég lagði af stað úr Reykjavík í [...]
Fjallahjólaflipp

Bjargey fékk nýtt hjól í dag. Það er af sem áður var að maður fái sæmilegt fjallahjól fyrir 30-40 þúsund. Prísinn fyrir gott hjól í dag er næstum tvisvar sinnum það takk fyrir! Fórum í Örninn enda ber sú verslun af þegar kemur að reiðhjólum. Oft verið meira úrval af alvöru hjólum. Væntanlega fáir sem eru [...]
Þyrluþjónustan
Ég eyddi þriðjudeginum í að rúnta um Suðurland á þyrlu og ljósmynda fyrir Þyrluþjónustuna. Ég get alveg ímyndað mér leiðinlegri verkefni…
Gummi og Namita

Stundum fær maður verkefni sem eru ævintýri. Brúðkaupið þeirra Namtiu Kapoor og Guðmundar Vigfússonar um síðustu helgi í San Francisco var eitt af þeim. Gumma hef ég þekkt síðan ég réði hann til starfa í Diktu forðum daga, en hann var þá að læra ljósmyndun og var asskoti efnilegur, auk þess að vera með eindæmum [...]
Út að leika

Í kvöld fór ég í smá leiðangur við Folaldadali og nágrenni. Við Jórugil voru þessar kindur með lömb. Þær kipptu sér ekkert upp við Róver, enda er hann svo vinalegt landbúnaðartæki.
Úr eldinum í ösku

Ég fór aftur í eldgosafýlu. Komst ekkert í seinna gosið fyrr en á sunnudaginn var. Móðir náttúra er ekkert að spyrja mann að verkefnastöðu áður en hún ákveður næsta gigg. Við Andri fórum í öskuna og í magnað flug með Daníel yfir Eyjafjallajökul í ljósaskiptunum. Ég hef lítið geta unnið úr þessu ennþá, en setti [...]
Hæ Gosi!

Ég fór með frábærum hópi aftur upp á Fimmvörðuháls á þriðjudaginn var. Þá fannst mér krafturinn aðeins minni í gosinu. Það kom því skemmtilega á óvart að ný sprunga skildi svo opnast í gær. Ný fyrirsæta hlýtur að kalla á nýjar myndir? En nú þarf ég víst að sinna öðrum verkefnum um stund. Hér er [...]
Fimmvörðuhálsinn

Eftir missheppnaða tilraun fyrstu gosnóttina var ég búinn að vera í nettri eldgosafýlu. Hún var þó fljót að hverfa þegar ég komst í flugferð með Jóni Spaða. Hann er fáranlega fær þyrluflugmaður og þrátt fyrir að vera ekki í eiginlegu ljósmyndaflugi náði ég mynda í gegnum pínulítinn glugga fram í. Ekki alveg til aur í [...]
Skjaldbreiðarskreppur

Við Árni skelltum okkur í jeppaljósmynda-bíltúr á laugardaginn var. Það var dásemdarveður, algjört logn og mjög milt miðað við árstíma. Við lögðum í hann á Lundanum með nesti og nýja skó um hádegisbil. Á þessum árstíma þarf maður ekki mikið að stressa sig á því að “ná” morgunbirtunni líkt og á sumrin. Ég ákvað að [...]
Vetrarfrí

Við hefðum alveg getað hugsað okkur að vera tvær til þrjár vikur í sumarbústaðnum Klausturbúð, sem stendur við Hæðargarðsvatn sunnan við Kirkjubæjarklaustur. Þetta er afskaplega fallegt svæði og ekki sveik veðrið um helgina. Það er ekki beint gefið að fá logn í fjóra daga og allt að 10 stiga hita í lok október. Ari Carl [...]
Sunnudagsbíltúr

Á sunnudaginn var fórum við í skemmtilegan bíltúr ásamt þeim Hildi og Árna að Hvalvatni. Upphaf leiðarinnar er uppi á Tröllhálsi af leið sem margir kalla Uxahryggjaleið. Hvalvatn er 4,1 km², dýpst 180 m og í 378 m hæð yfir sjó. Það er talið annað dýpsta stöðuvatn landsins á eftir Öskjuvatni. Útfall vatnsins er Botnsá, [...]
Feðgar á fjöllum

Sunnudaginn var skruppum við pabbi austur á Hvolsvöll. Fórum reyndar fyrst með tjaldvagninn minn í vetrargeymslu að Stóruvöllum og gistum svo á Hótel Hvolsvelli í góðu yfirlæti. Hótelið er stærra en maður reiknar með á Hvolsvelli. Herbergin eru stór og fín og maturinn ekki síðri. Við fengum dýrindis lambafile sem rann ljúflega niður með góðu [...]
Augnablik við Langasjó

Sumir dagar eru lengri en aðrir. Fjórir dagar á Hálendi Íslands gefa orku á við þriggja vikna frí. Við vorum stödd á Ísafirði þegar við tókum ákvörðun um miðjan júlí að skella okkur í þessa ferð með Ástu. Ég var að skoða tölvupóstinn í fyrsta skipti í tvær vikur og þarna var skeyti frá Ástu [...]
Vestfirðir, Strandir og Sléttan
Jæja, þá er maður kominn aftur í bæinn eftir rúmlega þriggja vikna ferðalag um Vestfirði, Strandir og Melrakkasléttu. Lánið lék við okkur fyrir vestan og við vorum veðurteppt í blíðu, aldrei þessu vant. Dag eftir dag vöknuðum við í sól og hita. Við tjölduðum á Laugum í Sælingsdal, Tálknafirði, Núp í Dýrafirði (yfir Holugeitungabú!), Reykjarfirði, [...]
Sumarfrí!

Þá eru allir í fjölskyldunni komnir í sumarfrí. Við stefnum á Vestfirði og Norðuland í ár. Verður líkast til rólegt hér næstu vikurnar…
Útilega tvö

Um síðustu helgi fórum við í aðra útilegu sumarsins. Það var þétt umferðin út úr bænum enda frábær spá fyrir helgina. Í Kömbunum skapaðist halarófa sem náði alla leið að Hveragerði. Hringtorgin sem búið er að innleiða svo víða eru ágæt þangað til að umferðin er orðin þung, þá skapa þau flöskuhálsa. En við vorum [...]
Fyrsta útilega sumarsins

Eins og til stóð byrjuðum við á því að fara í Skorradalinn. Ég kom fyrst við að Indriðastöðum. Mér leist nú ekki of vel á það tjaldstæði, frekar berangurslegt. Það er frítt fyrir handhafa útilegukortsins, en þar sem ég hafði ekki fjárfest í því ákvaðum við að skoða frekar tjaldstæðið við Selsskóga, eftir ábendingu þeirra [...]
Út á land með púkana

Þá er loksins komið að því. Fyrsta útilega sumarsins. Og ekki nóg með það. Fyrsta útilegan í nýja (notaða) tjaldvagninum okkar. Ég er reyndar grasekkill. Margrét er í Bergen á námskeiði í útikennslu ásamt öðrum leikskóla- og grunnskólakennurum úr Holtinu. Skylst að það sé massa sörvævör í gangi. En ég get ekki beðið lengur. Ég [...]
Sveitin

Fór í sveitaferð með leikskólanum hans Ara um daginn. Alltaf stuð að komast í sveitina og kreista dýrin. Ari Carl fór mikinn og hljóp meðal annars kiðling uppi og handsamaði. Sá hafði nefnilega sloppið út úr fjárhúsinu og Ari Carl var ekki alveg á því að það væri í lagi. Það var gaman að sjá [...]
Flateyjardömur

Þá er þessi tími ársins runninn upp á ný. Flatey á Breiðafirði kallar. Hópurinn leggur í hann á morgun og verður fram á sunnudag. Ég er að raða í töskuna hérna á vinnustofunni. Held ég hvíli filmuna í ár. Tók bara með mér filmu í fyrra og skaut á Hasselblad. Hér má skoða úrval frá [...]
Feðgar á ferð

Jæja, þá erum við feðgar komnir heim eftir vel lukkaða reisu til London. Við lögðum í hann snemma á fimmtudagsmorgninum eins og venjan er hér á Fróni. Vorum reyndar svolítið seinir af stað. Ég misreiknaði mig eitthvað varðandi hversu mikinn tíma ég þyrfti þarna um morguninn (gerði ekki ráð fyrir sturtu og rakstri). Það slapp [...]
565 Hofsós

Við fórum norður á Hofsós um páskana. Þetta var æðislegt páskafrí með góðum vinum, skíðaferðum og frábærum mat auðvitað. Ég ákvað að taka með mér bladdarann í þessa ferð. Ég fæ alltaf filmulosta annað slagið. Það er eitthvað við að skjóta á Hasselblad V-systemið sem engar aðrar vélar ná að gefa mér. Og á þessum [...]
Flatey 2006 remastered

Það er í senn blessun og bölvun að tækninni fleygi fram eins hratt og raun ber vitni. Þegar maður ljósmyndar stafrænt í RAW skráarsniði er endalaust hægt að vinna myndir upp á nýtt. Þegar hugbúnaðurinn þróast og býður upp á nýjar úrvinnsluaðferðir er freistandi að endurvinna myndir sem manni þykir vænt um. Ég var í [...]
