Christopher Lund » Hugbúnaður

Næsta Lightroom námskeið
Leikur ljóss á Hellisheiði. ©2010 Christopher Lund.

Þá styttist í næsta Lightroom námskeið, en þau held ég í samvinnu við Sense í Hlíðarsmára. Mér telst til að þetta sé fimmta námskeiðið sem ég held í samvinnu við þá. Miðað við umsagnir þátttakenda hafa þau verið vel heppnuð, en auðvitað er alltaf misjafnt hvar fólk er statt í upphafi.

Námskeiðið hentar þeim vel sem hafa ekki/lítið unnið með forritið eða telja sig þurfa að ná betri tökum á því. Þó svo að Lightroom virki ekki mjög flókið forrit í samaburði við  Photoshop býður það upp á gríðarlega margt. Það er töluvert meira en bara myndvinnsluforrit. Það er líka gagnagrunnur sem heldur utan um myndasafnið og sá hluti forritsins er vanmetinn að mínu mati.

Sjálfur nota ég Lightroom gríðarlega mikið og með tímanum tileinkar maður sér alltaf meira og meira af möguleikum þess. Ég nota það bæði til að halda utan um myndasafnið mitt, en ekki síður til að halda utan um einstök verkefni. Ég prenta nær eingöngu út úr Lightroom og það nýtist mér vel til þess að halda utan um stór prentverkefni eins og sýningar.

Næsta námskeið er haldið daganna 1., 3., 8. og 10. febrúar 2010 frá kl. 18:00 – 22:00. Þetta eru mánudags- og miðvikudagskvöld. Verðið er 29.900.- kr.

Ég legg áherslu á það að geta sinnt þátttakendum vel og því er hámarksfjöldi þátttakenda pr. námskeið 10 manns. Á hverju námskeiði eru ætíð líflegar umræður um ljósmyndun, tæki og tól og auðvitað er talað mikið um Lightroom. Fólk sem kemur saman með ástríðu fyrir ljósmyndun getur ekki annað en farið ríkara heim að námskeiði loknu.

Það eru ennþá laus pláss á næsta námskeið og þeir sem hafa áhuga geta sent tölvupóst á Halldór hjá Sense.

Lightroom 2.4 uppfærsla
Adobe var að gefa út uppfærslu á Lightroom sem nú er komið í útgáfu 2.4. Meðal nýjunga er stuðningur við Nikon D5000 og Canon EOS 500D (Digital Rebel T1i í BNA). Einnig er um almennar lagfæringar að ræða til að auka stöðugleika og hraða forritsins.

Uppfærslunar má sækja hér fyrir Mac og hér fyrir PC.

Námskeið
Jæja, þá er komið á hreint að fyrsta Lightroom námskeiðið verður haldið þann 10. febrúar næstkomandi. Námskeiðin eru haldin í samvinnu við Sense ehf að þessu sinni og kennt verður í húsnæði þeirra að Hlíðarsmára 3. Þar getum við tekið aðeins stærri hópa en setjum samt hámarkið við 10 manns. Það er mín reynsla að námskeiðin verða ekki eins markviss fyrir þátttakendur ef hóparnir eru of stórir. Annars eru allar nánari upplýsingar að finna hér.

Lightroom föndur kvöldisins
Arndís vetrardama. Canon EOS 1Ds Mark III, EF 135mm f/2.0L

Þessar myndir var ég að föndra við í Lightroom 2.0 kvöld. Með þessu áframhaldi hætti ég að nota Photoshop fljótlega!

Annars er á planinu að halda ný Lightroom námskeið á nýju ári. Og í þetta sinn ætla ég að gera meira úr ljósmyndunni. Það verður líka nóg af dóti til að prófa; myndavélar (Canon 1Ds Mark III, 1D Mark III, 5D Mark II), linsur (flestar L-linsurnar) og svo verður líka prentað fullt af því sem þátttakendur skjóta á námskeiðinu út úr Lightroom á Canon IPF 5100.

Eliot sólstrandargæi. Canon EOS 1Ds Mark III, EF 50mm f/1.2L

Áhugasamir geta sent mér línu á chris(at)chris.is og fengið nánari upplýsingar og/eða látið skrá sig á póstlistann.

Ari Carl útilegumaður. Canon EOS 5D, EF 85mm f/1.2L II

Nú er ég svo aldeilis hlessa
Tveir hissa. Canon EOS 1Ds Mark III, EF 50mm f/1.2L

Adobe tilkynntu um nýja betu af Lightroom 2.0 í gær. Ég sótti mér auðvitað eintak og þrátt fyrir að vera mjög snemmbúin beta lofar hún góðu. Helstu nýjungarnar eru:

Smart Collections – Flokkun mynda út frá breytum sem notandinn ákveður, lifandi möppur þar sem myndir færast sjálfkrafa í allt eftir uppsetningu notanda.

Mun fullkomnari síun (filter) mynda.

Þægilegri vinnsla með lykilorð, forritið stingur upp á lykilorðum út frá “nágranna” myndum.

Takmörk myndstærðar hækkað úr 10.000 í 30.000 pixla.

Stuðningur við fleiri en einn skjá tengdan við tölvu (loksins).

Hægt að flytja myndir í Photoshop CS3 sem Smart Object

Hægt að flytja margar myndir saman í Photoshop CS3 sem Panorama, HDR eða aðskilin layer.

Sjálfvirk skerpun við export (unnið í samvinnu við PixelGenius).

Staðbundin dekking/lýsing möguleg án þess að eiga við frummyndina (byggir á metadata).

Hægt að dekkja/lýsa horn mynda – líka eftir myndskurð.

Minnisnotkun fullkomnari – stuðningur við 64-bita stýrikerfi (Mac OS X 10.5 og Windows Vista).

Hægt að búa til “myndapakka” í prentham.

Hægt að vista prentuppsetningar út sem JPEG.

Fullkomnari prentskerpun byggð á PhotoKit Sharpener frá PixelGenius.

16-bita prentun mögulega í Mac OS X 10.5.

Ég verð þó að segja að ég er mest spenntur fyrir því að sjá hvernig þessi útgáfa  hegðar sér þegar myndirnar eru orðnar nokkur tugþúsund í safninu. Svona allsherjalausn hljómar vissulega vel, en hingað til hef ég verið að reiða mig á þrjú forrit til að halda utan um safnið og vinna úr því. Það væri gaman að geta fækkað þeim, en það mun tíminn einn leiða í ljós.

Talandi um breytingar. Ég tók til í gallery-inu – þ.e. fjölskylduhlutanum. Þetta var allt í belg og biðu, en er núna komið í röð eftir árum og mánuðum bara. Þar má finna fleiri skot af þeim Mats og Ara.

Er Lightroom best?
Þessa spurningu hef ég heyrt nokkuð oft. Fólkið sem spyr mig vill fá að vita hvort það eigi að skipta úr e-h öðru forriti til að vinna úr Raw skránum sínum. Það eru til fjöldamörg góð forrit til að vinna myndir í. Capture One frá PhaseOne er með þeim vinsælustu. Aperture frá Apple og Camera Raw í Photoshop CS3 virkar fínt fyrir aðra. Ég hef líka séð flotta útkomu með Dxo Optics Pro og líka Bibble. Það er því vonlaust fyrir mig að reyna að svara spurningunni. Þarfir ljósmyndara eru svo ólíkar og einnig smekkur þeirra þegar kemur að úrvinnslu.

En ég get auðvitað svarað fyrir mig. Sjálfur nota ég nánast eingöngu Lightroom nú orðið. Þar kemur vinnuflæðið sterkast inn. Ég er hvergi jafn fljótur að vinna nokkuð hundruð myndir. Ef ekki Lightroom þá nota ég Camera Raw í Photoshop CS3, en þá aðeins þegar um stakar eða mjög fáar myndir er að ræða. Lightroom er langt frá því fullkomið, enda fyrsta útgáfa af nýju forriti. En mér líkaði hvernig Adobe bauð ljósmyndurum að þróa vöruna með sér (ég var með frá fyrstu public betu). Þó að það hafi fyrst og fremst verið til að koma höggi á Apple, sem á sama tíma var nýbúið að kynna Aperture. Herbragðið heppnaðist vel hjá Adobe samkvæmt þessari könnun.

Rauðhólar, mynd óunnin beint úr Canon EOS 1Ds Mark II.

En Lightroom hefur eitt umfram flest þessara forrita sem ég taldi upp hér að ofan. Til að vinna myndirnar í Lightroom þarf að færa þær inn í forritið (import) og um leið eru þær komnar inn í gagngrunn. Lightroom hjálpar okkur því líka að halda utan um myndasafnið okkar. Forritið er uppbyggt þannig að það hvetur okkur til að nota metadata og skrá myndirnar. Stóri hausverkurinn er oftast að finna aftur myndina sem við unnum fyrir nokkrum mánuðum!

Rauðhólar, sama mynd og að ofan, eingöngu unnin í Lightroom.

En það sem vegur þyngst hjá mér er sú staðreynd að í dag er ég yfirleitt búinn með 90-95% af myndvinnslunni þegar ég exporta myndum út úr Lightroom til að vinna frekar í Photoshop. Í mörgum tilfellum þarf ég ekkert frekar að eiga við myndirnar. Myndin hér að ofan frá Rauðhólum er gott dæmi. Efri myndinni hefði ég  hent fyrir nokkrum árum þar sem hún er útbrunnin og flöt. Þá hefði það verið töluverð vinna í Photoshop að bjarga himninum og vinna upp kontrast. Og maður á það ennþá til að nánast afskrifa myndir þegar maður skoðar þær fyrst eftir að hafa tekið inn í tölvuna.

Talandi um Lightroom… ég verð með námskeið helgarnar 17. – 19. nóvember og 1. – 2. desember. Nánar um það hér.

Myndasafnið og Lightroom
Ég fékk fyrirspurn frá Braga Bergþórssyni varðandi vistun mynda á útværum harðdiski og stuðning Lightroom við offline myndir. Bragi skrifar:

Hugmyndin er semsagt að færa safnið af tölvunni yfir á utanáliggjandi harðan disk og spegla vikulega yfir á afritsdisk, eða þar um bil og geyma afritið þar á milli í eldföstu móti inni í örbylgjuofni… eða já.

Þá vakna nokkrar spurningar:

1) Get ég séð preview af myndunum úr safninu mínu þó ég sé ekki með harða diskinn tengdan við tölvuna?

2) Hvað gerist ef ég tappa af myndavélinni án þess að vera með harða diskinn tengdan? …til dæmis ef ég er á ferðalagi. Get ég sameinað söfnin eftirá auðveldlega?

3) Er einhver betri leið til að ná sama markmiði, þe. halda harða disknum í tölvunni óháðum myndasafninu?

Lightroom er DAM forrit (Digital Asset Management) á meðan Adobe Bridge er svokallaður Browser. Því þarftu ekki endilega að hafa harða diskinn tengdan til að geta séð preview af myndunum í safninu, því á bak við safnið er gagnagrunnur og preview myndir af innihaldi hans. Ef diskurinn er ekki tengdur verður nafnið á möppunni í Library einfaldlega rautt – til að gefa til kynna að myndirnar eru ekki aðgengilegar í augnablikinu. Það sama gerist ef þú færir myndir til á disknum án þess að láta Lightroom vita, ef svo má að orði komast. Lightroom geymir öll 1 : 1 preview í 30 daga, en þú getur breytt því í File>Catalog Settings – þannig að þeim sé aldrei hent. Það stækkar gagnagrunninn óhjákvæmilega og hann verður töluvert þyngri í keyrslu þegar myndunum fjölgar. Þannig að það þarf að vega og meta hversu mikilvægt það er fyrir þig að hafa alltaf previewin inni.

Varðandi annan lið þá er ekkert mál fyrir þig að sameina myndir inn í “master” safnið eftir t.d. ferðalag. Þú einfaldega flytur möppurnar út (export) sem catalog og flytur þær svo inn í “master” safnið (import). Passaðu bara að vera búinn að vista allar breytingar við myndirnar þannig að myndastillingar og hugsanleg skráning fylgi með (það má þó vel vera að gerist sjálfvirkt – hef ekki athugað það).

Varðandi þriðja liðinn hjá þér þá skil ég ekki alveg hvað þú átt við þar…

AMG, ekki bara bílar
Usss… vika síðan ég var hér á ferðinni síðast. Það er búið að vera mikið og gott að gera undanfarna daga. Ég var mest alla vikuna með henni Annette, blaðamanni frá Der Spiegel sem var að skrifa grein um feðraorlofið hér á landi. Hún var gríðarlega hrifin af landi og þjóð – og ekki síst því að því að um 90% allra karla nýti sér rétt sinn til feðraorlofs. Ég var sem sagt ráðinn til að ljósmynda fyrir greinina, en hún kemur til með að birtast í águst útgáfu Spiegel Special, sem er sérblað sem mun fjalla um fjölskyldumál að þessu sinni. Það er mjög gaman að fá svona verkefni, því ég fæ ekki oft tækifæri til að ljósmynda í ritstjórnarlegum tilgangi. Fréttaljósmyndun sem slík hefur aldrei heillað mig mikið, en svona reportage-ljósmyndun er hins vegar mjög skemmtileg. Við vorum líka ákaflega heppinn með viðfangsefni, þ.e. allir tóku okkur opnum örmum og höfðu ekkert á móti því að láta ljósmynda sig við daglegt líf. Hlakka til að sjá hvaða myndir þau velja á endanum, en það er ómögulegt að segja til um það. Þetta er fjórða skiptið sem ég vinn fyrir Der Spiegel og alltaf hefur það komið mér á óvart hvaða myndir þau nota. Þegar maður skilar af sér svona verkefni þýðir ekkert að senda þeim bara slatta af myndum. Myndaritstjórarnir vilja eingöngu fá það allra besta, aldrei meira en svona 20-25 myndir og það er nauðsynlegt að allar myndir séu vel skráðar á ensku. Það er gaman að vinna með erlendu fólki og læra af því.

Adobe hefur nú komið með viðbót í Bridge CS3 sem kallast AMG, sem stendur fyrir Adobe Media Gallery. Hér er um að ræða nýjan möguleika til að búa til html og flash vefgallery, ekki ósvipuð og við könnumst við úr Lightroom. Eins og þar er einnig hægt að upload-a beint úr forritinu inn á heimasvæði. Það þarf að setja AMG inn sem viðbót í Bridge (sækja hér) og eftir að það er komið inn velur þú Window>Workspace>Adobe Media Gallery. Í framhaldinu velur maður svo myndirnar sem eiga að vera í galleryinu og velur svo um mismunandi gerðir og stærðir í glugganum til hægri. Það eru bæði mismunandi gerðir og svo útfærslur af þeim (templates og styles). Hjá mér birtist þetta reyndar ekki fyrr en ég valdi e-h myndir í filmstrip og fór svo valdi AMG undir workspace. Þá er hægt að forskoða í vafra eða í glugganum sjálfum í Bridge. Þessi viðbót passar reyndar ekki alveg við restina af Bridge í útliti en það er víst vegna þess að AMG er búið til með ExtendScript og Script UI.

Camera Raw 4.1
T-bone steik unnin í Camera Raw 4.1, frá myndatöku í Gallerí Kjöt í dag.

Adobe hefur uppfært Camera Raw í útgáfu 4.1. Í stað hinnar hefðbundnu uppfærslu, sem inniheldur aðeins stuðning við nýjar myndavélar, er hér á ferðinni meiriháttar uppfærsla sem gerir Camera Raw, að mínu mati, besta hugbúnaðinn til að vinna með Raw skrár. En, hvað með Lightroom? spyrja sjálfsagt margir. Jú, sömu uppfærslur koma innan tíðar þar líka. Það er frí uppfærsla á Lightroom á leiðinni með þessum sömu nýjungum og meira til.

Nýjungarnar í Camera Raw 4.1 eru þessar: Nýjar og mun betri skerpustillingar, ný stilling á svokölluðu Clarity (local contrast enhancement) sem gefur meira “pop” í myndirnar, betri noise meðhöndlun og tvær nýjar stillingar fyrir leiðréttingar á linsugöllum (defringing). Það er algjör snilld hvernig uppfærslur á hugbúnaði geta skilað manni betri og betri myndum. Ég er farinn að endurvinna allar eldri myndir (ef ég þarf að fara í þær) sökum þess að ég næ svo miklu meira út úr þeim. Um daginn seldi ég mynd sem var tekin á Nikon D1x árið 2002. Ég átti orginal TIFF myndina, en ákvað að vinna hana aftur frá Raw skránni. Það var ótrúlegt hversu mikið betri nýja myndin varð bara við það eitt að vinna út frá Lightroom.

Jeff Schewe hefur tekið saman afar nákvæma útlistun á þessum tólum hér. Nú er um að gera að uppfæra!

Raw vs. JPEG
Í Lightroom er nú hægt að vinna JPEG, TIFF og PSD myndir með sömu tólum og áður var einungis hægt að nota á RAW skrár í Camera Raw og/eða öðrum forritum sem vinna úr RAW skrám. Því hefur vaknað spurning hjá mörgum hvers vegna þeir eiga að skjóta í RAW þar sem allir vinnslukostirnir eru nú opnir fyrir JPEG? Það tekur jú mikið minna pláss sem léttir á allri vinnslu og þar fram eftir götunum. Eftirfarandi pistill svarar vonandi e-h spurningum um kosti RAW fram yfir JPEG.

HVAÐ ER RAW?

Strangt til tekið er RAW skrá einfaldlega hrá gögn frá skynjara ásamt öðrum gögnum frá myndavélinni sjálfri sem gefa upplýsingar um hvernig myndin var tekin, þ.e. lýsing, ljósop, hraði, white balance o.s.frv. RAW skrár eru ekki ein tegund skráarsniðs heldur eru til margar útgáfur í takt við tegundir myndavéla, sbr. Canon .CRW og .CR2, Nikon .NEF Olympus .ORF o.s.frv.

RAW SKRÁR ERU SVART/HVÍTAR

Skynjari í stafrænni myndavél er ljósnæmur. Hann gefur upplýsingar um ljósmagnið sem fellur á hann. Hann veit hins vegar ekkert um lit ljóssins. Rétt eins og í filmu, þar sem það eru þrjú emulsjón lög sem lesa rautt, grænt og blátt ljós, þarf skynjari í stafrænni myndavél að geta lesið litina alla og skilað niðurstöðu fyrir þá alla í sérhverjum punkti. Til eru þrjár leiðir til að ná því fram:

Taka þrjár myndir með rauðum, grænum og bláum litfilter og setja svo myndirnar saman (multishot aðferð).

Setja litfiltersmosaík yfir skynjarann.

Skipta ljósinu með prisma í þrennt og setja þrjá skynjara með litfilter fyrir rauðan, grænan og bláan og svo eru þessar þrjár myndir sameinaðar (beamsplitter aðferð).

Sú filtermosaík sem mest er notuð í stafrænum myndavélum heitir Bayern-matrix. Samsetningin er svona

Eins og sjá má er tvisvar sinnum fleiri grænir fletir en rauðir og bláir. Ástæðan er sú að augun okkar eru næmari fyrir grænu ljósi en rauðu og bláu.

Hlutverk RAW skráarbreytis er því að umbreyta gögnunum frá skynjaranum, með aðstoð gagna frá myndavélinni (metadata), í litmynd sem inniheldur gildi fyrir RGB í sérhverjum pixli myndarinnar. Á ensku er talað um þetta ferli sem demosaicing. En RAW skráarbreytir gerir líka margt annað í leiðinni. Hann stýrir grájafnvægi eða white balance, þýðingu litanna (CIE XYZ), möppun tóna og meðhöndlar noise ásamt skerpu.

LÍNULEGT VIÐBRAGÐ VIÐ LJÓSI

Lykilatriði í skilningi á því hvernig stafræn ljósmyndun er frábrugðin filmuljósmyndun er að skilja hvernig skynjari í stafrænni myndavél bregst við ljósi. Ólíkt filmu er viðbragð hans línulegt sem mjög frábrugðið því hvernig augun okkar og filman virkar.

Skynjarar telja einfaldlega ljóseindir eða ljósmagn eftir línulegu skipulagi. Það þýðir t.d. að ef við erum með vél sem notar 12 bita dýpt til að reikna þá hefur vélin 4096 ?hólf? til að ?flokka? tóna í. Við skulum skoða betur hvað þessi bita dýpt gerir fyrir okkur.

Bita dýpt segir okkur hversu marga tóna við höfum til að vinna úr. Tölvur vinna með svokallaðar tvenndartölur sem eru annað hvort 1 eða 0. Átta bita mynd inniheldur því 256 tóna fyrir hvern lit (2x2x2x2x2x2x2x2 = 256) á meðan 10 bita inniheldur 1024 tóna fyrir hvern lit og 12 bita 4096 tóna fyrir hvern lit.

Gefur okkur að stafræn SLR myndavél ráði við tónavídd upp á 6 ljósop. Maður myndi þá ætla að þessir 4096 tónar í 12 bita mynd dreifðust jafnt á þessi 6 ljósop sem myndir þá þýða 4096/6 = 682,6 tónar. En svo er ekki þar sem RAW gögnin eru línuleg og það þýðir að fyrsta (bjartasta ljósopið) tekur til helmings allra tóna eða 2048, næsta ljósop helming af því og svo koll af kolli. Við sjáum að það á myndinni að það eru hlutfallslega mun færri tónar til að flokka skuggasvæði í en háljós (mun færri þrep).

Til samaburðar hefur átta bita JPEG mynd yfir ennþá færri tónum að ráða. Tökum samanburð á 8 bita JPEG mynd og 12 bita RAW mynd og setjum upp í einfalda töflu þar sem við reiknum með að viðfangsefnið hafi tónavídd (dynamic range) upp á fimm ljósop:

12 bita RAW skrá

Fyrsta ljósop  (allra ljósustu tónar)    2048 tónar

Annað ljósop  (ljósir tónar)    1024 tónar

Þriðja ljósop  (millitónar)    512 tónar

Fjórða ljóop  (dökkir tónar)    256 tónar

Fimmta ljósop  (dekkstu tónar)    128 tónar

8 bita JPEG skrá

Fyrsta ljósop  (allra ljósustu tónar)    69 tónar

Annað ljósop  (ljósir tónar)    50 tónar

Þriðja ljósop  (millitónar)    37 tónar

Fjórða ljóop  (dökkir tónar)    27 tónar

Fimmta ljósop  (dekkstu tónar)    20 tónar

Ástæðan fyrir mun færri tónum hjá JPEG myndinni er tvíþætt. Annars vegar er það munurinn á 8 bitum (256 vs 4096 tónar) og hins vegar fækkar JPEG þjöppun tónunum enn frekar.

Það er því mikilvægt að lýsa rétt við stafræna ljósmyndun. Það er ekki síður mikilvægt heldur en þegar myndað er á filmu, þó svo að sumir hafi ranghugmyndir um annað. Ef við fullnýtum ekki tónasviðið á þann hátt að við leggjum háljósin á réttan stað ? þ.e. lýsum eins ríkulega og mögulegt er án þess að sprengja háljósin, erum við að pressa skuggasvæðin óþarflega langt niður og höfum þannig færri og færri tóna til að skila þeim. Til nokkurar einföldunar má segja að við lýsum eins og við erum vön með pósitívar filmur ? lýsum fyrir háljósin en ekki skuggann.

Eins og áður var sagt sjáum við ljós á mjög frábrugðinn hátt miðað við skynjara í stafrænni myndavél. Hjá okkur er tónastiginn jafn frá svörtu yfir í hvítt.  Við skynjum t.d. tvöföldun í ljósmagni á allt annan hátt en stafræn vél. Til að líkja eftir því notar tölvan svokallaðar gamma kúrvur. Það þarf að varpa línulegri Raw mynd yfir í gamma leiðrétta mynd.

Þessari aðgerð getum við í grófu máli líkt við að færa endapunktana inn í Levels að hvítu og svörtu og taka svo miðpunktinn og lýsa all hressilega um leið og við aukum kontrastinn vel með Curves. Þetta eru í raun mjög stórar breytingar á gögnunum og stórar breytingar í levels eða curves eiga það til að “skemma myndirnar á þann hátt að við fáum stöllun í tónum (tónaskalinn er ekki lengur samhangandi heldur í sýnilegum þrepum). Það gefur sig því sjálft að til þess að myndirnar okkar lifi af vörpun frá línulegri mynd yfir í gamma leiðrétta mynd er mikilvægt að lýsa þannig að dekkstu og um leið viðkvæmusutu tónarnir, séu ekki pressaðir of langt niður í skalanum.

Það er því ekki æskilegt að vera að meðvitað að undirlýsa til að reyna að halda inni háljósupplýsingum, því hættan er sú að miðtónarnir og skuggarnir lendi of neðarlega og þú færð noise í þessi svæði, sem getur gert það að verkum að myndin sé hálfónýt. Þú ert í betri málum með aðeins yfirlýsta mynd en undirlýsta, því það er hægt að ná inn ótrúlega miklu af háljósunum í Camera RAW og þar erum við að færa gögnin inn í tónasvæðið sem inniheldur flestu tónana. Vertu því frekar aðeins yfir strikinu en undir því.