Rauðaflúð að hverfa

raudaflud.jpg

Andri var að hringja. Hann var nýbúinn að tala við Raxa sem er fyrir austan. Rauðaflúð er víst að hverfa í þessum rituðum orðum undir Hálslón. Ég tók þessa mynd af Margréti Vilhjálmsdóttur leikkonu við Rauðuflúð í sumar. Magnaður krafturinn og um leið ótrúleg fegurðin í Jöklu fer ekki fram hjá manni á þessari mynd.

Það eru víst ekki margir að festa tortíminguna á filmu. Kemur mér ekki á óvart svo sem. Það þarf ekkert smáræðis hugrekki að horfa upp á aftöku af þessari stærðargráðu. Ég tek ofan fyrir Ómari og Raxa og öllum öðrum sem eru þarna fyrir austan núna.

4 Responses to “Rauðaflúð að hverfa”

  1. Karna says:

    Blessuð sé minningin, burt með nýðingana! Takk fyrir fallega mynd.

  2. Ragnheiður says:

    Villtist inn á þessa síðu og varð eiginlega að kommenta því að orðið sem kom til að sanna að ég sé ekki eitthvert spam ógeð var “prumpa”

  3. chris says:

    Fannst þér það sem sagt ekki fyndið?

  4. [...] þegar ég opnaði bloggið hans Chris í morgun, þetta er svo leiðinlegt eitthvað. Ég er feginn að vera ekki á Íslandi núna, skömm að [...]

Leave a Reply

*
To prove you're a person (not a spam script), type the security word shown in the picture. Click on the picture to hear an audio file of the word.
Click to hear an audio file of the anti-spam word