Barnamyndatökur
Að ljósmynda börn er eitt það skemmtilegasta sem ég geri, en um leið með því erfiðasta. Myndatakan verður að vera á þeirra forsendum ef myndirnar eiga að vera góðar og endurspegla þann karakter sem barnið er.
Ásamt hefðbundnum myndatökum í studio býð ég upp á að koma heim til ykkar eða við finnum okkur hentugt svæði úti við. Það býður upp á skemmtilega fjölbreytni og börnin eru líklegri til að finna til öryggis á heimavelli. Í slíkum myndatökum eyði ég mun meiri tíma með ykkur og tek mikið af myndum af allri fjölskyldunni, þó með aðaláherslu á börnin. Markmiðið er að búa til ljósmyndabók um fjölskylduna þína, eigulegan grip sem er meira en bara “myndataka”.
Auk þessa get ég afgreitt myndirnar á hverju því formi sem þið óskið eftir. Myndir í albúm, stækkanir í ramma eða á striga, myndir á DVD til sýna í sjónvarpi eða tölvu. Ég hýsi ennfremur vefgallery á Netinu þar sem þið getið deilt myndunun með fjölskyldu og vinum.
Hafðu samband til að fá nánari upplýsingar um möguleikana og verð.
