Myndvinnsla og skönnun
Ég þarf alltaf að hafa nokkra bolta á lofti. Því hefur mér ekki dugað að vera bara í ljósmyndun. Mér er sagt að ég sé nörd. Ég hugsa að það sé svolítið til í því. Ég hef gaman af því að kafa ofan í hluti og gera allt eins vel og mögulegt er. Tæknin í faginu mínu finnst mér spennandi og verkefni eins skönnun, myndvinnsla, litgreining, litstýring og ICC prófílar eiga stundum stóran hluta af tímanum mínum. Þegar kemur að skönnun þá sætti ég mig ekki við neitt annað en það besta í græjum.
Imacon 949 skanninn er alger draumur að vinna á og tryggir frábæra útkomu í skönnun á filmum, hvort sem það er negatívur eða slides. Sérstök myndvinnsla eins og samsetningar mynda, viðgerðir, möskun o.s.frv. getur bæði verið skemmtileg og hundleiðinleg. Galdurinn felst í nálguninni. Ef maður æðir bara af stað missir maður fljótt þolinmæðina.
Krefjandi verkefni þurfa góðan undirbúning. Ég hef gaman af því að sjá afrasktur erfiðis og því hef ég tekið að mér verkefni í myndvinnslu sem öðrum finnst jafnvel bilun að eyða tímanum í. Hvað litgreiningarvinnu varðar þá er bókin um Kjarval líklega mitt helsta afrek.

Hún fékk meira að segja Íslensku bókmenntaverðlaunin. Myndirnar í bókinni voru ýmist til á filmum eða voru ljósmyndaðar sérstaklega fyrir hana. Til að fá bestu mögulegu útkomu fór ég reglulega með tölvuna, skjáinn og næstum bara allt draslið upp á Kjarvalsstaði. Þar var málverkunum safnað saman til myndatöku. Jafnvel þó að maður noti gráskala og litaspjöld eru oft litbrigði sem engin leið er að stilla af nema að hafa frummyndina fyrir framan sig. Það var mögnuð tilfinning að vera innan um frummyndirnar hans, ekki síst persónulega muni og rissbækur. Kjarval var frábær málari og það kom mér á óvart hversu ótrúlega fjölhæfur hann var á hvaða form málverksins sem var.
Ég er til taks í stærri og smærri verkefni. Hafðu samband ef þú vilt fá mig til að skoða verkefni og gefa þér tilboð í vinnsluna.

