Námskeið

Í samvinnu við Sense ehf býð ég Adobe Photoshop Lightroom námskeið.
Námskeiðið er fjögur kvöld, fjórir tímar í senn frá kl 18 til 22.
Kennt er í húsnæði Sense að Hlíðarsmára 3, 2. hæð.
Lögð er áhersla á að þátttakendur læra að vinna með eigin myndavélar og tölvur. Stafræn D-SLR myndavél og fartölva eru nauðsynleg fyrir þátttöku. Hópur þátttakenda verður ekki stærri en 10 manns í hvert sinn.
Á meðal þess sem skoðað er:
- Munurinn á Lightroom og Bridge/Photoshop CS4
- Samhæfing á uppsetningu Lightroom og Photoshop CS4
- Mismunandi litrýmdir og skráarsnið
- Lýsa rétt fyrir stafrænt
- Grájafnvægi
- Litstýringarferlið frá töku til prentunar
- Kvörðun og ICC prófílar (þátttakendur fá útbúinn skjáprófíl)
- Lightroom Catalogs og uppsetning á þeim
- Flytja myndir inn í Lightroom
- Skráning mynda, höfundarmerking og lykilorð
- Úrval mynda (rating)
- Fáðu það mesta út úr RAW – kostir Lightroom umfram pixel editing
- Skerpun mynda: Við töku, sérstök svæði, prentskerpun
- Framköllun á raw (export)
- Sérsniðnar flýtistillingar
- Sjálfvirkni í myndvinnslu með þátttöku Photoshop CS4
- Skil á myndum til þriðja aðila
- Vefgallery, myndasýningar og PDF myndasýningar
- Prentun, Soft Proof, notkun prentprófíla
- Hvað er CMYK?
- Geymsla stafrænna mynda og afritun
Þeir sem vilja skrá sig á næsta námskeið geta sent tölvupóst á netfangið halldor@sense.is
· Verð: 29.900 kr.
