Arkitektúr ljósmyndun

Einn af kennurunum mínum frá Fotografskolen í Viborg sagðist alltaf kunna best við að ljósmynda byggingar. Þær væru nefnilega alveg kyrrar og héldu kjafti! Hann var nefnilega ekki mikið fyrir barnamyndatökurnar sá. Það er vissulega kostur að þurfa ekki að elta viðfangsefnið mikið, en það er síst minni vinna að ljósmynda byggingar en börn.

Til að taka góða arkitektúrmynd þarf maður að liggja yfir því á hvaða tíma dags eða jafnvel nætur byggingin tekur sig best út. Skoða þarf húsið í heild og sjá hvað arkitektinn var að fara þegar hann teiknaði húsið. Svo þarf að hafa augun opin fyrir smáatriðunum. Lítið atriði eins og hurðarhúnn getur verið listaverk í sjálfu sér.