Öskudagur

Ég þarf að játa svolítið. Ég skil ekki öskudag. Þessi dagur er eitthvað svo fáranlegur. Öskudagur er rakinn til kristni og er fyrsti dagur lönguföstu. Við erum búin að afbaka hann í einhvers konar hrekkjavöku! Á hrekkjavöku er verið að þakka fyrir uppskeru og boða komu vetursins. Hrekkjavökubúningarnir tengjast því að mörk heima hinna lifandi [...]
Síðasta kvöldmáltíðin?

Nei, bara lokaspretturinn í 6 ára afmæli. Sykurstjarfinn orðinn vel sýnilegur.
Tímamót

Að senda barnið sitt af stað í skóla eru mikil tímamót. Á þessum degi breytist margt. Strax í morgun kom í ljós fyrsta breytingin á kauða. Hann tók ekki mál að gyrða stuttermabolinn ofan í buxurnar. Ekki svalt að vera brókaður á fyrsta skóladegi. Ekki það að það hafi haft úrslitaáhrif eins og sjá má [...]
Ný sýn
Það kom í ljós í fimm ára skoðuninni um daginn að kauði sá ekki alveg nógu vel. Við feðgarnir fórum því til augnlæknis í gær til að fá úr þessu skorið. Og það er nokkuð ljóst að Ari Carl hefur erft blessuðu nærsýnina frá pabba sínum. Fórum því til Axels frænda í Optic Reykjavík með [...]
Lesið fyrir afa

Við Ari fórum að heimsækja afa á spítalann um daginn. Sá gamli var í smá viðhaldi á hné. Kemur ykkur sem sem þekkja Kanslarann líkast til ekki á óvart. Enginn skógarköttur hann pabbi, þó norskur sé! Þennan sama dag fór Ari í 5 ára skoðun og fékk að launum hina og þessa bæklinga sem hann sýndi afa [...]
Drullumall
Ég held að það sé ekki alslæmt að eiga mig fyrir föður. Einhverjir foreldrar hefðu nú kannski sagt eitthvað annað en: “Bíddu, ég ætla að ná í myndavélina!” ef að barnið þeirra hefði bankað á svalahurðina svona útlítandi?
Hvert fór snjórinn?

Hver fór snjórinn? Canon EOS 5D Mark II, EF 50mm f/1.2L Nú, norður auðvitað. Og þá dugar ekkert minna en að renna sér til Akureyrar á skíði. Vetrarfríið framundan hjá púkunum mínum og því upplagt að leggja land undir fót (eða dekk öllu heldur). Það verður stuð að renna sér aftur í Hlíðarfjalli, hef ekki [...]
Bleeeeessaður meistari!

Aron Freyr heilsar að hætti Spiderman. Canon EOS 5D Mark II, EF 50mm f/1.2L Helgin var fín maður. Sérstakleg sunnudagurinn, enda komst maður loksins aftur á skíði. Í ljósi þess hversu lítið hefur snjóað undanfarið, kom það mér verulega á óvart hversu mikill snjór var upp í Bláfjöllum. Það voru allir fjölskyldumeðlimirnir að prufukeyra ný [...]
Lightroom föndur kvöldisins

Arndís vetrardama. Canon EOS 1Ds Mark III, EF 135mm f/2.0L Þessar myndir var ég að föndra við í Lightroom 2.0 kvöld. Með þessu áframhaldi hætti ég að nota Photoshop fljótlega! Annars er á planinu að halda ný Lightroom námskeið á nýju ári. Og í þetta sinn ætla ég að gera meira úr ljósmyndunni. Það verður [...]
5 ára pjakkur

Pakkagleði að morgni. Canon EOS 1Ds Mark III, EF 50mm f/1.2L Ari Carl varð fimm ára í gær. Við höldum upp á afmælið á morgun en pjakkurinn fékk að opna tvo pakka í gær. Frá okkur Margréti fékk hann langþráðan buzz-risaeðluleik fyrir playstation og frá systur sinni handsmíðað púsl sem hún gerði í skólanum. Snúðurinn [...]
Fúlt að vera lasinn

Lasinn snúður. Canon EOS 1D Mark III, EF 50mm f/1.2L Það er fúlt að vera lasinn. Og líkast til ennþá leiðinlegra að eiga pabba sem ljósmyndar mann í fýlunni. Þetta hafa systur hans líka mátt þola. Þegar ég er heima með lasin börn er vélin oftast á lofti. En kannski ekki þegar ælupestin gengur. Maður [...]
Skautastubbur

Skautastubbur horfir til himins. EOS 1Ds Mark III, EF 50mm f/1.2L Þá kom að því að koma drengnum á skauta. Hann var reyndar ekkert allt of spenntur fyrst þegar minnst var á þessa hugmynd, enda ekki sá hugaðasti. En við foreldrarnir hlustum ekki á nætt væl. Tilefnið var skautaferð með bekknum hennar Arndísar. Allt brjálað [...]
Afmælisklipping

Stjúri gerir kamb á kauða. EOS 1Ds Mark II og EF 50mm f/1.2L Ari Carl hélt upp á 4 ára afmælið sitt á laugardaginn var. Hann verður reyndar tæknilega ekki 4 ára fyrr en á miðvikudaginn kemur, en það skiptir ekki öllu máli (nema í sumum fjölskyldum). Ég trúi því varla að það séu fjögur [...]
Uppbretta nefið hans Ara

Einar Áskell getur verið varasamur… EOS 5D, 50mm f/1.4 Syni mínum finnst gaman að skoða bækur áður en hann fer að sofa. Hann er með svolítið uppbrett nef. Skildi þetta vera ástæðan? Í dag var skólasetning hjá stelpunum mínum í Norðlingaskóla. Fór fram í Björnslundi sem er útiskólastofa af norskri fyrirmynd (nema hvað?). Lýst vel [...]
Hvert þó í hoppandi

Ari og Eliot taka snúning á trampólíninu í dag. Það líður allt of langt á milli pósta þessa dagana. Allt brjálað að gera og ofan á það erum við fjölskyldan að undirbúa flutning, en við erum á förum úr Hraunbænum upp í Sandavað um mánaðarmótin. Já, Norðlingaholtið var það heillin. Sama póstnúmer – mikið atriði. [...]

