Öskudagur

Ég þarf að játa svolítið. Ég skil ekki öskudag. Þessi dagur er eitthvað svo fáranlegur. Öskudagur er rakinn til kristni og er fyrsti dagur lönguföstu. Við erum búin að afbaka hann í einhvers konar hrekkjavöku! Á hrekkjavöku er verið að þakka fyrir uppskeru og boða komu vetursins. Hrekkjavökubúningarnir tengjast því að mörk heima hinna lifandi [...]
Hvað er portrett?

Ég sat í dómnefnd fyrir ljósmyndasýninguna “Mynd ársins 2009″ um síðustu helgi. Skemmtileg vinna og mikill heiður að fá taka þátt í að velja myndirnar. Með mér í dómnefnd sátu þau Pétur Thomsen ljósmyndari, Kjartan Dagbjartsson frá Nordic Photos og Max Houghton, ritstjóri hins virta tímarits 8 Magazine í Bretlandi. Við dómnefndarstörfin kom ýmislegt í [...]
Eru ekki allir að komast í jólaskap?
Hér er gamalt myndband af þeim systrum að syngja jólalög. Arndís er fjögra ára og Bjargey sex. Takið eftir íburðnum í eldhúsinu hjá okkur í Hraunbænum.
Tveggja stafa

Það er naumast hvað eitt ár getur liðið fljótt! Finnst eins og það séu nokkrir mánuðir en ekki heilt ár síðan ég skrifaði þetta. Nú er sem sagt áratugur síðan þessi skvísa kom í heiminn. Við feðginin fórum í gær og versluðum nýja línuskauta í afmælisgjöf frá okkur foreldrunum. Fínir skautar á góðu verði í [...]
Jekyll and Hide

Ég rakst á þessar myndir sem ég tók í Hraunbænum, á meðan systir mín bjó þar ennþá (við bjuggum þarna síðar). Þarna má sjá Hlyn Smára, uppáhalds-frænda sýna frænkum sínum píanóið sitt. Eftir nokkrar sekúndur var svo kominn upp smá ágreiningur um hver systrana ætti að fá að prófa að spila fyrst. Það er e-h [...]
Jólin komu snemma í ár

Arndís málar sig. Canon EOS 5D Mark II, EF 50mm f/1.2L Ég sá eftir því að hafa selt fimmuna mína. Þó að hún væri ekki eins sterkbyggð og ásarnir og ekki með eins öflugt fókuskerfi var hún samt svo frábær. Þegar ég spái í það þá er Canon EOS 5D líkast til bestu myndavélakaup sem [...]
Lightroom föndur kvöldisins

Arndís vetrardama. Canon EOS 1Ds Mark III, EF 135mm f/2.0L Þessar myndir var ég að föndra við í Lightroom 2.0 kvöld. Með þessu áframhaldi hætti ég að nota Photoshop fljótlega! Annars er á planinu að halda ný Lightroom námskeið á nýju ári. Og í þetta sinn ætla ég að gera meira úr ljósmyndunni. Það verður [...]
Gamalt og gott

Arndís ullar (að venju). Nikon D1x, 17-35mm f/2.8 AF-S Ég hef verið að koma gömlu efni af geisladiskum inn á harða diskinn. Tek svona skorpur þegar ég er í stuði. Það er af nógu af taka enda eru geisladiskarnir næstum 400 og svo haugur af dvd diskum líka. Krefst þolinmæði. Það eru sjálfsagt margir í [...]
Meiri dans

Klassíski listdansskólinn. Canon EOS 1Ds Mark III, EF 70-200mm f/2.8L IS Þá loksins gafst mér smá tími til að vinna aðeins úr myndunum sem ég tók á vorsýningu Klassíska listdansskólans. Arndís dóttir mín æfir ballet hjá skólanum og sýningarnar verða flottari með hverju árinu sem líður. Hún er búin að æfa í þrjú ár og [...]
Heilladísin orðin 9 ára

Arndís dagsgömul. Canon EOS 1, EF 28-80mm f/2.8L, Ilford HP5. Það er ótrúlegt að það skuli vera orðin níu ár síðan þessi dís kom í heiminn. Þá vorum við fjölskyldan stödd í Danaveldi, nánar tiltekið í Viborg þar sem ég var við nám í Medieskolerne. Arndís lét hafa fyrir sér, gólaði vel og mikið fyrstu [...]
Hárprýði

Hárið tamið. EOS 1Ds Mark III, EF 50mm f/1.2L. Ég smellti af þessari í gær, þar sem Margrét er að byrja á því að gera fasta fléttu í Arndísi. Þær systur eru hárprúðar eins og algengt er með stúlkur á þessum aldri. Arndís æfir ballet og þarf að mæta með snúð í hárinu. Ég stakk [...]
Nýjar glyrnur reynast vel

Arndís að lita. EOS 1Ds Mark II, EF 85mm f/1.2L II Í gær fór ég í sjónlagsaðgerð hjá Lasersjón. Í dag ók ég bíl gleraugnalaus í fyrsta skipti á æfinni. Fannst ég vera að stelast. En ég sá fyllilega nógu vel. Það er smá loðleiki í kringum ljósgjafa og kontrastlínur, líkt og maður sé með [...]
