Fjallahjólaflipp

Bjargey fékk nýtt hjól í dag. Það er af sem áður var að maður fái sæmilegt fjallahjól fyrir 30-40 þúsund. Prísinn fyrir gott hjól í dag er næstum tvisvar sinnum það takk fyrir! Fórum í Örninn enda ber sú verslun af þegar kemur að reiðhjólum. Oft verið meira úrval af alvöru hjólum. Væntanlega fáir sem eru [...]
Flottur árangur

Ég er svo stoltur af Bjargey, elstu dóttur minni. Þessi elska vann upplestrarkeppni í skólanum sínum dag. Ég er búinn að fylgjast með henni við undirbúningin undanfarna daga, heyra í henni lesa upphátt fyrir sjálfa sig kvöld eftir kvöld. Í gærkvöldi sagði hún mér að hún kynni orðið textann utanbókar, svo oft var hún búin [...]
Öskudagur

Ég þarf að játa svolítið. Ég skil ekki öskudag. Þessi dagur er eitthvað svo fáranlegur. Öskudagur er rakinn til kristni og er fyrsti dagur lönguföstu. Við erum búin að afbaka hann í einhvers konar hrekkjavöku! Á hrekkjavöku er verið að þakka fyrir uppskeru og boða komu vetursins. Hrekkjavökubúningarnir tengjast því að mörk heima hinna lifandi [...]
Eru ekki allir að komast í jólaskap?
Hér er gamalt myndband af þeim systrum að syngja jólalög. Arndís er fjögra ára og Bjargey sex. Takið eftir íburðnum í eldhúsinu hjá okkur í Hraunbænum.
Nemendasýning JSB

Nemandasýning JSB í kvöld. Canon EOS 1Ds Mark III, EF 70-200mm f/2.8L IS Það var stolltur faðir sem tók þessa mynd í kvöld. “Litla” stelpan mín stóð sig frábærlega, eins og þær allar sem dönsuðu fyrir okkur í kvöld. Það kemur ykkur kannski ekki á óvart, en ég ljósmynda þessar sýningar alltaf nokkuð ítarlega. Mér [...]
Jólin komu snemma í ár

Arndís málar sig. Canon EOS 5D Mark II, EF 50mm f/1.2L Ég sá eftir því að hafa selt fimmuna mína. Þó að hún væri ekki eins sterkbyggð og ásarnir og ekki með eins öflugt fókuskerfi var hún samt svo frábær. Þegar ég spái í það þá er Canon EOS 5D líkast til bestu myndavélakaup sem [...]
Handbolti og Heiðmörk

Bjargey skorar mark. Canon EOS 1D Mark III, EF 70-200mm f/2.8L IS Það var handbolti og Heiðmörk um helgina. Bjargey tók þátt í Íslandsmóti í ÍR-húsinu í Austurbergi á laugardaginn. Fylkisstúlkur stóðu sig vel og unnu þrjár af fjórum viðureignum sínum. Bjargey var að byrja að æfa aftur eftir árshlé. Það var gaman að sjá [...]
Jazzballet

Generalprufa, Nemendasýning JSB. Canon EOS 1Ds Mark II, EF 35mm f/1.4L. Bjargey tók þátt í Nemendasýningu JSB þann 12. mars síðastliðinn. Hún er búin að æfa Jazzballet undanfarið ár með miklum áhuga og því var nokkur eftirvænting að fá að sjá afrakstur vetrarins. Ég fékk leyfi til að fylgjast með generalprufunni og gat því ljósmyndað [...]
Viðburðarík helgi

Bjargey tekur flugið. Canon EOS 1Ds Mark III, EF 70-200 f/2.8L IS. Það er nóg að gera þessa dagana – á öllum sviðum. Jólapantanirnar að drekkja manni og svo var ég svo “sniðugur” að taka að mér vikulangt verkefni fyrir Listasafn Reykjavíkur í síðustu viku, svona til að viðhalda nægri pressu! Krakkarnir eru líka á [...]
Frumburðurinn tíu ára

“Lubba” Lund í vöggunni sinni. Hasselblad 503CW, 80mm f/2.8, Kodak Tri-x Maður er ekkert unglamb lengur. Nú á ég tíu ára gamla dóttur! Bjargey kom í heiminn að morgni dags 28. ágúst 1997, eftir svolítið strembna nótt og harðar hríðir. Hún var vel hærð, eins og sjá má á myndinni hér að ofan, sem er [...]
