Posts Tagged ‘Ferðalag’

Skjaldbreiðarskreppur

Skjaldbreiðarskreppur

Við Árni skelltum okkur í jeppaljósmynda-bíltúr á laugardaginn var. Það var dásemdarveður, algjört logn og mjög milt miðað við árstíma. Við lögðum í hann á Lundanum með nesti og nýja skó um hádegisbil. Á þessum árstíma þarf maður ekki mikið að stressa sig á því að “ná” morgunbirtunni líkt og á sumrin. Ég ákvað að [...]


Vetrarfrí

Vetrarfrí

Við hefðum alveg getað hugsað okkur að vera tvær til þrjár vikur í sumarbústaðnum Klausturbúð, sem stendur við Hæðargarðsvatn sunnan við Kirkjubæjarklaustur. Þetta er afskaplega fallegt svæði og ekki sveik veðrið um helgina. Það er ekki beint gefið að fá logn í fjóra daga og allt að 10 stiga hita í lok október. Ari Carl [...]


Sunnudagsbíltúr

Sunnudagsbíltúr

Á sunnudaginn var fórum við í skemmtilegan bíltúr ásamt þeim Hildi og Árna að Hvalvatni. Upphaf leiðarinnar er uppi á Tröllhálsi af leið sem margir kalla Uxahryggjaleið. Hvalvatn er 4,1 km², dýpst 180 m og í 378 m hæð yfir sjó. Það er talið annað dýpsta stöðuvatn landsins á eftir Öskjuvatni. Útfall vatnsins er Botnsá, [...]


Feðgar á fjöllum

Feðgar á fjöllum

Sunnudaginn var skruppum við pabbi austur á Hvolsvöll. Fórum reyndar fyrst með tjaldvagninn minn í vetrargeymslu að Stóruvöllum og gistum svo á Hótel Hvolsvelli í góðu yfirlæti. Hótelið er stærra en maður reiknar með á Hvolsvelli. Herbergin eru stór og fín og maturinn ekki síðri. Við fengum dýrindis lambafile sem rann ljúflega niður með góðu [...]


Augnablik við Langasjó

Augnablik við Langasjó

Sumir dagar eru lengri en aðrir. Fjórir dagar á Hálendi Íslands gefa orku á við þriggja vikna frí. Við vorum stödd á Ísafirði þegar við tókum ákvörðun um miðjan júlí að skella okkur í þessa ferð með Ástu. Ég var að skoða tölvupóstinn í fyrsta skipti í tvær vikur og þarna var skeyti frá Ástu [...]


Vestfirðir, Strandir og Sléttan

Jæja, þá er maður kominn aftur í bæinn eftir rúmlega þriggja vikna ferðalag um Vestfirði, Strandir og Melrakkasléttu. Lánið lék við okkur fyrir vestan og við vorum veðurteppt í blíðu, aldrei þessu vant. Dag eftir dag vöknuðum við í sól og hita. Við tjölduðum á Laugum í Sælingsdal, Tálknafirði, Núp í Dýrafirði (yfir Holugeitungabú!), Reykjarfirði, [...]


Sumarfrí!

Sumarfrí!

Þá eru allir í fjölskyldunni komnir í sumarfrí. Við stefnum á Vestfirði og Norðuland í ár. Verður líkast til rólegt hér næstu vikurnar…


Útilega tvö

Útilega tvö

Um síðustu helgi fórum við í aðra útilegu sumarsins. Það var þétt umferðin út úr bænum enda frábær spá fyrir helgina. Í Kömbunum skapaðist halarófa sem náði alla leið að Hveragerði. Hringtorgin sem búið er að innleiða svo víða eru ágæt þangað til að umferðin er orðin þung, þá skapa þau flöskuhálsa. En við vorum [...]


Feðgar á ferð

Feðgar á ferð

Jæja, þá erum við feðgar komnir heim eftir vel lukkaða reisu til London. Við lögðum í hann snemma á fimmtudagsmorgninum eins og venjan er hér á Fróni. Vorum reyndar svolítið seinir af stað. Ég misreiknaði mig eitthvað varðandi hversu mikinn tíma ég þyrfti þarna um morguninn (gerði ekki ráð fyrir sturtu og rakstri). Það slapp [...]


London kallar!

London kallar!

Þá er komið að því. CL og ACL smella sér í feðgaferð til London! Iceland Express auglýsti flugmiðana til London Gatwick nánast gefins um daginn (skattarir fylgdu með, sem betur fer) og ég missti mig um stund og pantaði miða fyrir okkur Ara Carl. Ekkert tilefni annað en að eyða gæðatíma með púkanum og heimsækja [...]


565 Hofsós

565 Hofsós

Við fórum norður á Hofsós um páskana. Þetta var æðislegt páskafrí með góðum vinum, skíðaferðum og frábærum mat auðvitað. Ég ákvað að taka með mér bladdarann í þessa ferð. Ég fæ alltaf filmulosta annað slagið. Það er eitthvað við að skjóta á Hasselblad V-systemið sem engar aðrar vélar ná að gefa mér. Og á þessum [...]


Sumarið er komið

Sumarið er komið

Gleðilegt sumar gott fólk. Í tilefni sumardagsins fyrsta setti ég saman smá vídeó frá sumarfríi í Frakklandi 2003. Hér má sjá frænkurnar fagna sumri á sinn einstaka hátt.


Flatey 2006 remastered

Flatey 2006 remastered

Það er í senn blessun og bölvun að tækninni fleygi fram eins hratt og raun ber vitni. Þegar maður ljósmyndar stafrænt í RAW skráarsniði er endalaust hægt að vinna myndir upp á nýtt. Þegar hugbúnaðurinn þróast og býður upp á nýjar úrvinnsluaðferðir er freistandi að endurvinna myndir sem manni þykir vænt um. Ég var í [...]


DIM 41

DIM 41

Í föstudaginn í síðustu viku var ég fluga á vegg á æfingu hjá frábærum tónlistarmönnum. Jazztríóið ber vinnuheitið DIM 41, en þeir æfa nú efni eftir Árna Heiðar Karlsson, sem er arkitektinn af tríóinu. Tríóið skipa: Árni Heiðar Karlsson á píanó, Gunnar Hrafnsson á kontrabassa og Matthías Hemstock á trommur. Hér má svo finna vefgallery [...]


Rakadrægur og skuldlaus

Rakadrægur og skuldlaus

Ekkert helv… myntkörfulán. Canon EOS 1Ds Mark III, EF 50mm f/1.2L Alltaf hressandi þegar maður þarf að skafa bílrúðuna að innan… Annars er ég alveg skíðahress eftir vel heppnaða Akureyrarferð. Við náðum fimm dögum á skíðum. Hlíðarfjallið sveik ekki, frábært skíðasvæði fyrir fjölskyldufólk. Ari Carl náði mun betri tökum á sportinu, enda er þarna forláta [...]


Helgarferð að Stóra Hofi

Helgarferð að Stóra Hofi

Brakandi þurrkur á Stóra Hofi. Canon EOS 5D Mark II, EF 50mm f/1.2L Helgin var fín. Skruppum austur að Stóra Hofi með góðum vinum. Hlynur og Guðrún buðu okkur Margréti og líka Andra Snæ og hans Margréti. Og púkunum auðvitað. Ég var búinn að plana að taka með gönguskíðin í þessa ferð, en það varð [...]


Lightroom föndur kvöldisins

Lightroom föndur kvöldisins

Arndís vetrardama. Canon EOS 1Ds Mark III, EF 135mm f/2.0L Þessar myndir var ég að föndra við í Lightroom 2.0 kvöld. Með þessu áframhaldi hætti ég að nota Photoshop fljótlega! Annars er á planinu að halda ný Lightroom námskeið á nýju ári. Og í þetta sinn ætla ég að gera meira úr ljósmyndunni. Það verður [...]


Brókaðir bræður

Brókaðir bræður

Vel girtir ungir menn skoða fornbíla. © Mats Wibe Lund Hann Felix vinur minn á afmæli í dag. Felix og ég vorum algjör samloka þegar við vorum pjakkar. Alltaf saman og sumir héldu jafnvel að við værum tvíburabræður. Okkur fannst það sko ekki leiðinlegt. Sumarið 1981 fórum við ásamt fjölskyldum okkar í reisu um Bandaríkin. [...]


Haustferð norður yfir heiðar

Haustferð norður yfir heiðar

Sumarhúsið í Fnjóskadal. Canon EOS 1Ds Mark III, EF 24-70mm f/2.8L Við fjölskyldan flúðum norður í Fnjóskadal um helgina. Ég var með verkefni á Akureyri og föstudagurinn var ekki kennsludagur í skólanum hjá stelpunum svo það var gráupplagt að nýta tækifærið og gera smá reisu úr þessu. Þetta var fyrsta langferðin á nýja (gamla) bílnum, [...]


í lífsins ólgusjó

í lífsins ólgusjó

Dísan í spænsku brimi. Canon EOS 1Ds Mark III, EF 50mm f/1.2L Þessi mynd lýsir líðan fjölda Íslendinga sem nú eru staddir í lífsins ólgusjó. Nei, bara grín. Fannst þetta bara sniðug mynd af henni móður minni. Ég notaði annars kvöldið til þess að vinna nokkrar myndir frá ferðinni okkar til Spánar nú í september. [...]


Er einhver heima?

Er einhver heima?

Kanslarinn nær sér í skotsilfur á Spáni. Canon EOS 1Ds Mark III, EF 50mm f/1.2L Mikið skelfing er erfitt að komast undan þessum efnahagsnáttúruhamfarafréttaflutningi. Þessi mál eru fyrir löngu orðin óskiljanleg fyrir mér. Hvernig væri að nota peningana til þess að afnema verðtryggingu og lækka vexti í stað þess að afhenda “snillingunum” meira til að [...]


Bjánar fara til Spánar

Bjánar fara til Spánar

Frábært útsýni. Canon EOS 1Ds Mark III, EF 35mm f/1.4L Mér hefur alltaf fundist þessi setning svolítið fyndin. Algjört bull auðvitað, en samt fyndin. Móðir mín varð sjötug nú á dögunum og í tilefni þeirra tímamóta buðu þau heiðurshjón okkur systkinunum og fjölskyldum okkar í vikuferð til Costa Del Sol. Það var kærkomin hvíld eftir [...]


Snorklað um Hvítasunnu

Snorklað um Hvítasunnu

Snorklað í Silfru. Canon EOS 1Ds Mark II, EF 17-40mm f/4.0L Ég fór ásamt nokkrum góðum vinum að snorkla í Silfru á Þingvöllum í gær. Ferðin var í boði dive.is sem bjóða upp á bæði köfunar- og snorklferðir ásamt því að vera köfunarskóli. Við snorkluðum á meðan Tobias (eigandi og kennari hjá dive.is) kafaði fyrir [...]


Varstu í fríi?

Varstu í fríi?

Ljósaskiptin í Egaliere S-Frakklandi, júlí 2003. Hasselblad 903 SWC, Fuji NPH. Neibb ég hef ekki verið í fríi… þannig að ég hef enga afsökun fyrir slælega frammistöðu við að uppfæra þessa síðu. Tók reyndar páskafrí eins og flestir landsmenn. Notaði hluta af því til að ganga almennilega frá myndum sem ég tók sumarið 2003 í [...]