Píslarsund

Við Bjargey fórum í smá píslarsund ásamt góðum vinum í dag. Ég man þegar ég var púki hvað föstudagurinn langi stóð ætíð undir nafni. Laaaaangdreginn dagur. Allt lokað og svona. Í dag var hægt að skella sér í sjósund. Hrikalega hressandi. Hér eru fleiri myndir.
Flottur árangur

Ég er svo stoltur af Bjargey, elstu dóttur minni. Þessi elska vann upplestrarkeppni í skólanum sínum dag. Ég er búinn að fylgjast með henni við undirbúningin undanfarna daga, heyra í henni lesa upphátt fyrir sjálfa sig kvöld eftir kvöld. Í gærkvöldi sagði hún mér að hún kynni orðið textann utanbókar, svo oft var hún búin [...]
Öskudagur

Ég þarf að játa svolítið. Ég skil ekki öskudag. Þessi dagur er eitthvað svo fáranlegur. Öskudagur er rakinn til kristni og er fyrsti dagur lönguföstu. Við erum búin að afbaka hann í einhvers konar hrekkjavöku! Á hrekkjavöku er verið að þakka fyrir uppskeru og boða komu vetursins. Hrekkjavökubúningarnir tengjast því að mörk heima hinna lifandi [...]
Laufabrauð í Rauðavaði

Við fórum í laufabrauðsgerð til Bengó, Þrása og Betu í gær. Allir voru sammála um að laufabrauðið væri sérlega vel heppnað í ár. Það var sérstaklega vel skorið og steiktist jafnt. Það er mikilvægt að pikka vel eftir skurð. Annars verður brauðið bólgið og ljótt við steikingu. Svili er mikill ástríðumaður þegar kemur að laufabrauði. [...]
