565 Hofsós

Við fórum norður á Hofsós um páskana. Þetta var æðislegt páskafrí með góðum vinum, skíðaferðum og frábærum mat auðvitað. Ég ákvað að taka með mér bladdarann í þessa ferð. Ég fæ alltaf filmulosta annað slagið. Það er eitthvað við að skjóta á Hasselblad V-systemið sem engar aðrar vélar ná að gefa mér. Og á þessum [...]
Sumarið er komið

Gleðilegt sumar gott fólk. Í tilefni sumardagsins fyrsta setti ég saman smá vídeó frá sumarfríi í Frakklandi 2003. Hér má sjá frænkurnar fagna sumri á sinn einstaka hátt.
Hofsós var það heillin

Þá leggjum við land undir fót og höldum norður á Hofsós með góðum vinum um Páskana. Stefnan er svo að tékka á skíðasvæðinu Tindastól. En að öðru leyti er bara afslöppun og kósíheit. Kannski að maður taki eitthvað af myndum líka? Þessi hér að ofan er tekin á leið út á Hofsós fyrir mörgum árum. [...]
Jekyll and Hide

Ég rakst á þessar myndir sem ég tók í Hraunbænum, á meðan systir mín bjó þar ennþá (við bjuggum þarna síðar). Þarna má sjá Hlyn Smára, uppáhalds-frænda sýna frænkum sínum píanóið sitt. Eftir nokkrar sekúndur var svo kominn upp smá ágreiningur um hver systrana ætti að fá að prófa að spila fyrst. Það er e-h [...]
Straumlínulagaður tölvupóstur

Pósthúsið í Flatey á Breiðafirði. Hasselblad SWC 903, Fuji NPS 160 Ég gerði svolítið sniðugt um daginn (svona til tilbreytingar). Líkt og margir er ég með nokkur mismunandi tölvupóstföng. Og líkt og margir á ég fleiri en eina tölvu þar sem ég les og skrifa tölvupóst. Það flækir málin, því stundum lendi ég í því [...]
Hliðræn endurholgun

Endurholgun? Hasselblad 503CW, Planar 80mm f/2.8 Fyrir þá sem trúa á endurholgun þá er ómögulegt að ætla annað en að í einhverju lífi sé maður fugl. Ég meina, hversu margar dýrategundir para sig fyrir lífstíð? Þá er spurning: Hvar vill maður vera – sem fugl – með sinni heittelskuðu? Í mínu tilfelli er því auðsvarað: [...]
Skin og skúrir í Flatey

Flatey í lok maí 2008. Hasselblad 503CW, Planar 150mm f/4, Fuji Reala. Ég ákvað að skella inn tveimur myndum frá Flatey. Bara svona til að sýna fram á það að ég er á lífi og er byrjaður að vinna úr myndunum. Það er óneitanlega meira haft fyrir því að skjóta á filmuna, svo ekki sé [...]
Helgarorlof

Orlofsnefnd húsmæðra (litli kassinn). Hasselblad SWC 903, Fuji NPH 400. Já, orlof var það heillin. Nú leggur maður land og láð undir fót; árleg Flateyjarferð er á dagskrá. Kærkomið frí og samvera með góðum vinum á meðan krakkaskarinn okkar skemmtir sér út í guðsgrænni náttúrunni. Í ár ætla ég að skemmta mér með Hasselblad frænda, [...]
Varstu í fríi?

Ljósaskiptin í Egaliere S-Frakklandi, júlí 2003. Hasselblad 903 SWC, Fuji NPH. Neibb ég hef ekki verið í fríi… þannig að ég hef enga afsökun fyrir slælega frammistöðu við að uppfæra þessa síðu. Tók reyndar páskafrí eins og flestir landsmenn. Notaði hluta af því til að ganga almennilega frá myndum sem ég tók sumarið 2003 í [...]
Herbergið mitt

Ég held áfram í filmunni. Kom heim með bladdarann um síðustu helgi og tók þessar myndir af börnunum mínum í herbergjunum sínum. Það er nú ekki mikið ljós inni hjá þeim og hjá stelpunum eru litaðir lampaskermar í loftinu. Það var því vægast sagt föndur að litgreina negatívin, en ég skaut þessar myndir á gamla [...]
Spessi og Stephan, taka tvö

Spessi og Stephan. Hasselblad 503CW, Planar 80mm f/2.8, Fuji NPH. Hér er svo myndin sem ég lofaði að pósta. Skaut þessa sem sagt á föstudaginn var af þeim félögum. Er bara nokkuð sáttur við útkomuna. Varð til þess að ég kláraði tvær 220 NPH á mettíma, miðað við stafræna öld. Finn á mér að nú [...]
Ferningslagað heimilislíf

Ég var að fletta í gegnum gamlar myndir og rakst á þessar litlu seríu sem ég var búinn að gleyma. Systurnar eru hér að taka dansspor með dúkku og töfrasprota, syngjandi eitthvað prinsessulag ef ég man rétt. En eins og svo oft áður þá voru þær ekki alveg sammála um sporin. Stóra systir ákvað því [...]
Reykjanesið filmað með sænska gæðastálinu

Þá koma fleiri myndir frá ferðinni okkar á sumardaginn fyrsta út á Reykjanes. Ég hafði ekki komið út að Reykjanesvita áður og því ekki séð þennan fallega stað. Þarna á Valahnúk stóð upphaflegi Reykjanesvitinn, en hann var reistur 1878 og var fyrsti ljósviti á Íslandi. Í miklum jarðskjálftum 8-9 árum síðar hrundi úr hnjúknum og [...]
