DIM 41

Í föstudaginn í síðustu viku var ég fluga á vegg á æfingu hjá frábærum tónlistarmönnum. Jazztríóið ber vinnuheitið DIM 41, en þeir æfa nú efni eftir Árna Heiðar Karlsson, sem er arkitektinn af tríóinu. Tríóið skipa: Árni Heiðar Karlsson á píanó, Gunnar Hrafnsson á kontrabassa og Matthías Hemstock á trommur. Hér má svo finna vefgallery [...]
Rakadrægur og skuldlaus

Ekkert helv… myntkörfulán. Canon EOS 1Ds Mark III, EF 50mm f/1.2L Alltaf hressandi þegar maður þarf að skafa bílrúðuna að innan… Annars er ég alveg skíðahress eftir vel heppnaða Akureyrarferð. Við náðum fimm dögum á skíðum. Hlíðarfjallið sveik ekki, frábært skíðasvæði fyrir fjölskyldufólk. Ari Carl náði mun betri tökum á sportinu, enda er þarna forláta [...]
Hvert fór snjórinn?

Hver fór snjórinn? Canon EOS 5D Mark II, EF 50mm f/1.2L Nú, norður auðvitað. Og þá dugar ekkert minna en að renna sér til Akureyrar á skíði. Vetrarfríið framundan hjá púkunum mínum og því upplagt að leggja land undir fót (eða dekk öllu heldur). Það verður stuð að renna sér aftur í Hlíðarfjalli, hef ekki [...]
Bleeeeessaður meistari!

Aron Freyr heilsar að hætti Spiderman. Canon EOS 5D Mark II, EF 50mm f/1.2L Helgin var fín maður. Sérstakleg sunnudagurinn, enda komst maður loksins aftur á skíði. Í ljósi þess hversu lítið hefur snjóað undanfarið, kom það mér verulega á óvart hversu mikill snjór var upp í Bláfjöllum. Það voru allir fjölskyldumeðlimirnir að prufukeyra ný [...]
Stephan, Spessi, Sýningar og Skíði

President Bongo – pappahólkur – Spessi. EOS 1Ds Mark III, EF 50mm f/1.2L Fyrst hér mynd af þeim Stephan og Spessa. Þeir voru hjá mér á föstudaginn. Hólkurinn var fyrir mynd sem ég var að prenta fyrir Spessa. Sú sama og er á kápunni á Location bókinni. Hún er líka hrikalega flott í stærðinni 100×100 [...]
Heja Norge 3

Þetta eru Geilokerti. Norðmönnum nægja nefnilega ekki venjuleg Grýlukerti. Þau eru e-h svo þreytt. Þessi eru miklu hressari og reyna að komast inn til manns ef maður skilur eftir opinn glugga. Allt í lagi, ég skal hætta að bulla. Þegar hlánaði undir lok ferðar komu þessi ferlíki skríðandi niður. Það var mikið snjófarg á þakinu [...]
Heja Norge 2

Það hafði bæst í snjóinn þegar við vöknuðum fyrsta daginn okkar á Geilo. Ari Carl var ekkert rosalega ferskur enda fórum við með pjakkinn hálf veikan út. Meira að segja stuðið í Bubba byggir púslinu fór fljótt. Við morgunverðarborðið komu fyrstu áhyggjurnar af “brekkunni” fram, en hún hefur oft reynst bílunum erfið ef það er [...]
Heja Norge 1

Þá loksins hefur maður smá tíma til að blogga. Ferðin til Noregs var mjög fín, þrátt fyrir nokkur veikindi í hópnum. Við flugum með SAS Braathens klukkan fjögur síðdegis, sem er velkomin nýjung í ferðalögum okkar Íslendinga í stað þess að rífa sig upp um miðja nótt og vera svo fyrsta sólarhringinn í fríinu að [...]
