Smá mont

Það er nú ekki á hverjum degi sem National Geographic hefur samband og vill kaupa af manni myndir. Skammast mín því ekkert fyrir því að monta mig aðeins! Hér er umfjöllunin á vef National Geographic.
Hæ Gosi!

Ég fór með frábærum hópi aftur upp á Fimmvörðuháls á þriðjudaginn var. Þá fannst mér krafturinn aðeins minni í gosinu. Það kom því skemmtilega á óvart að ný sprunga skildi svo opnast í gær. Ný fyrirsæta hlýtur að kalla á nýjar myndir? En nú þarf ég víst að sinna öðrum verkefnum um stund. Hér er [...]
Meira gos!

Meira gos í tvennum skilningi. Ég er búinn að vinna fleiri myndir frá föstudeginum og svo er ég á leiðinni aftur austur á morgun!
Fimmvörðuhálsinn

Eftir missheppnaða tilraun fyrstu gosnóttina var ég búinn að vera í nettri eldgosafýlu. Hún var þó fljót að hverfa þegar ég komst í flugferð með Jóni Spaða. Hann er fáranlega fær þyrluflugmaður og þrátt fyrir að vera ekki í eiginlegu ljósmyndaflugi náði ég mynda í gegnum pínulítinn glugga fram í. Ekki alveg til aur í [...]
